Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti heldur áfram að taka saman fyrir okkur efni úr sáðalmanaki Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs síðastliðin 60 ár a.m.k. og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Júní 2011

Dagur  Tími

1. júní      00 – 24 rót.
2. júní      00 – 24 rót.
3. júní      00 – 06 rót, 07 – 24 blóm.
4. júní      00 – 24 blóm.
5. júní      00 – 09 blóm, 10 – 24 blað.
6. júní      00 – 16 blað, 17 – 24 ávöxtur.
7. júní      óhagstæður til sáningar.
8. júní      00 – 24 ávöxtur.
9. júní      00 – 10 ávöxtur, 11 – 24 rót.
10. júní    00 – 14 óhagstætt tímabil, 15 – 24 rót.
11. júní    00 – 14 rót, 14 – 24 óhagstætt.
12. júní    00 – 16 óhagstætt, 16 – 24 blóm.
13. júní    00 – 21 blóm, 22 -24 blað.
14. júní    00 – 24 blað.
15. júní    00 – 15 blað, 15 – 24 óhagstætt.
16. júní    00 – 02 blað, 03 – 24 ávöxtur.
17. júní    00 – 22 ávöxtur, 22 – 24 óhagstætt.
18. júní    00 – 24 rót.
19. júní    00 – 06 rót, 07 – 21 blóm/ávöxtur, 22 – 24 rót.
20. júní    00 – 12 rót, 13 – 24 blóm.
21. júní    00 – 24 blóm.
22. júní    00 – 17 blóm, 18 – 24 blað.
23. júní    00 – 18 blað, 19 – 24 blóm.
24. júní    00 – 08 blóm, 09 – 24 blað.
25. júní    00 – 18 blað, 19 – 24 ávöxtur.
26. júní    00 – 24 ávöxtur.
27. júní    00 – 16 ávöxtur, 17 – 24 blóm.
28. júní    00 – 10 blóm, 11 – 24 rót.
29. júní    00 – 24 rót.
30. júní    00 – 14 rót, 15 – 24 blóm.

Tímabilið frá 2. til og með 14. júní hagstætt til útplöntunar og uppskeru róta. 15. til og með 29. júní hagstætt til uppskeru og/eða söfnunar blaða/blóma. Sem dæmi væru góð tímabil til að safna birkilaufi, sem og blaðjurtum þann 22. júní frá kl. 18 til kl. 18 þann 23. og aftur frá kl. 9 þann 24. til kl. 18 þann 25. júní. Blómum frá kl. 19 þann  23. til kl. 8 þann 24. júní, einnig aftur frá kl. 17 þann 27. til kl. 10 þann 28. júní, einnig frá kl. 15. þann 30. júní.

Á þessum tímabilum sem hér eru upp talin eru blöðin og/eða blómin kröftugust, en það þýðir samt ekki að þau séu einskis virði utan þessara tímabila. Einnig er ávallt hagstæðara að safna eða uppskera ofanjarðarhluta jurta fyrri hluta dags, eða fram til kl. hálftvö og uppskera rætur/rótarávexti seinni hluta dags og fram á kvöld.

Sjá nánar um það hvaða plöntur teljast til rótar, blaða, blóma og ávaxta hér.

Grafík: Sáðalmanak fyrir júní 2011. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðjurt, brún fyrir rótarávöxt og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils. Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
1. júní 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sáðalmanak fyrir júní 2011“, Náttúran.is: 1. júní 2011 URL: http://nature.is/d/2011/06/01/sadalmanak-fyrir-juni-2011/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: