Mörg litarefni og framleiðsluferli vefnaðarvöru eins og í gluggatjöldum fela í sér að efnið er meðhöndlað með sýruböðum, og eiturefnum af ýmsum gerðum, sumum jafnvel skaðlegum heilsunni. Eins er framleiðslan sjálf oft uppspretta alvarlegra umhverfisáhrifa og heilsutaps fólks. Sum efni eru umhverfisvænni en önnur.

Bómull er eitt skaðlegasta hráefnið vegna mikillar eiturefnanotkunar við ræktun þess. Fyrir hvert kg. af bómull sem er ræktað þarf um eitt kg. af eiturefnum. Sé hins vegar valin lífrænt ræktuð bómull þá er eiturefnanotkun næstum bönnuð og notkun skaðlegra efna við meðhöndlun efnanna haldið í algeru lágmarki.

Sanngirnisvottun er staðfesting á því að varan er unnin á siðferðislega sanngjarnan hátt, án skaðlegra áhrifa fyrir starfsmenn og að þeir fái sanngjörn laun fyrir vinnuna.
Við val á vefnaðarvörum í baðherbergið ætti að taka tillit til þess að þær þurfa að þola vel raka og vera endingargóðar.

Að ofannefndu má vera ljóst að í öllu falli er umhverfisvænast að velja handklæði, þvottaklúta, bleyjur og gardínur úr lífrænni bómull og/eða sem eru umhverfismerkt af viðurkenndum aðilum. Innlend framleiðsla hefur þann kost að hafa ekki verið flutt um langan veg sem gerir hana umhverfisvænni en samsvarandi vöru sem flutt er með skipi eða flugvél langan veg.

Örtrefjaklútar eru umhverfisvænsta lausnin til þrifa því þeir gera hreinsilög næsta óþarfan. Nauðsynlegt er að þvo tuskurnar reglulega til þess að þær safni ekki örverum.

Birt:
21. júní 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Gluggatjöld“, Náttúran.is: 21. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/21/gluggatjld/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: