Náttúran.is framleiðir dömu- og herra stuttermaboli til að upphefja  náttúruna og græn gildi. „Nature.is love“ bolirnir eru af gerðinni EarthPositive® sem er verðlaunuð lífræn og loftslagsvæn framleiðsla* með myndum af Náttúru-konu og Náttúru-karli í íslenskri náttúru.

Bolirnir eru framleiddir í þremur stærðum og tveimur litum, rauðum og grænum, bæði fyrir herra og dömur. Bolirnir fást hér á Náttúrumarkaði. Sjá grænan herrabol, rauðan herrabol, grænan dömubol og rauðan dömubol. Sjá aðrar stærðir í Náttúrubúðinni.

Hvað er EarthPositive?

EarthPositive®er byltingarkennd græn fatalína þar sem kolefnisfótspor framleiðslunnar er í algeru lágmarki.

Hvorki meira né minna en sjö vottanir staðfesta háleit markmið og vel heppnaða útfærslu „minna umhverfisskaðlegrar framleiðslu“ en þekkst hefur hingað til í vefnaðariðnaðinum. 100% lífræn- og sanngirnisvottuð framleiðsla, en ekki síst, framleitt eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku. Framleiðslunni er dreift af kolefnisjöfnuðum vöruhúsum og skrifstofum í London sem nota eingöngu endurnýjanlega græna raforku. EarthPositive® flytur aðeins með skipum landa á milli og notar ekki flugfrakt því þó að skipaflutningar geti ekki talist umhvefisvænir verða mun neikvæðari umhverfisáhrif af völdum flugvéla. Allt er því gert til að framleiðsla, dreifing og öll viðskipti með vöruna valdi sem minnstum umhverfisskaða.

EarthPositive® fatalínan kynnir Carbon Trust vottun en hún staðfestir þá kolefnislosun sem framleiðslan veldur, í þessu tilviki á bómullarfatnaði. Carbon Trust loftslagsvottunin er ein sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.

Vottuð heildar kolefnislosun framleiðslu og dreifingu á einum EarthPositive® bol:
Dömubolur 576g, herrabolur 671g.

*Vinningshafi „Best Organic Textile Product“ The Soil Associations Natural and Organic Awards 2009. Bros flytur bolina inn og merkti bolina fyrir Náttúruna.

Birt:
5. ágúst 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Loftslagsvænir ástarbolir Náttúrunnar“, Náttúran.is: 5. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2009/09/23/nytt-loftslagsvaenir-astarbolir-natturunnar/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 23. september 2009
breytt: 13. nóvember 2011

Skilaboð: