Snyrtivörur varða daglega umhirðu líkama okkar. Margar snyrtivörur höfða mest til skjótfenginna fegurðaráhrifa en taka lítið tillit til áhrifa á heilsu notandans eða umhverfisáhrifa til lengri tíma. Til eru lífrænt vottaðar snyrtivörur, umhverfisvottaðar og sanngirnisvottaðar. Snyrtivörur geta innihaldið bæði tilbúin og náttúruleg efni. Stundum koma náttúrulegu efnin beint úr jurtum, en oft er búið að einangra þau til að fá nákvæmlega þá virkni sem óskað er eftir í vörunni. Fræðiheiti sem hljóma ónáttúruleg geta verið nöfn á einstökum náttúrulegum efnasamböndum.

Í snyrtivörudeildinni hér á Náttúrumarkaðinum eru allar upplýsingar af umbúðum skráðar nákvæmlega í samræmi við gildandi reglur. Fólk getur haft ofnæmi fyrir einstökum efnum, þótt þau séu náttúruleg, til að mynda fyrir hnetum eða ilmefnum. Skoðið því vel öll innihaldsefnin.

Einnig er hægt að gera sínar eigin náttúrlegu snyrtivörur með lítlli fyrirhöfn. Maska, krem og baðolíur má t.d. gera úr eggjum, höfrum, gúrkum, hnetum, sítrónum og fjöldanum öllum af jurtum sem vaxa villtar um allt land og auðvitað úr góðum olíum. Það er enginn vandi að prófa sig áfram. Hægt er að byrja með því að setja uppáhalds jurtina sína í góða olíu og láta standa í nokkra daga, t.d. birkiblöð í ólífuolíu. Yndislegt!

Birt:
13. ágúst 2011
Höfundur:
Náttúran
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran „Svefnherbergið - Snyrtivörur“, Náttúran.is: 13. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2009/09/26/svefnherbergio-snyrtivorur/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. september 2009
breytt: 13. nóvember 2011

Skilaboð: