Fjarðarþrif ehf. er ræstingarfyrirtæki sem er staðsett á Eskifirði og er jafnframt tuttugasti leyfishafi Svansins á Íslandi. Náttúran óskar Fjarðarþrifum til hamingju með metnaðinn og viðurkenninguna sem felst í að hafa náð viðmiðum Svansins.

Kröfur Svansins fyrir ræstiþjónustu:

  • Strangar kröfur um efnanotkun. Að minnsta kosti 50% hreinsiefna verða að vera umhverfismerkt, bann við notkun efna sem eru skaðleg umhverfinu og heilsu fólks. Heildarnotkun efna er lágmörkuð með réttri skömmtun.
  • Mengun vegna flutninga fyrirtækisins er lágmörkuð með kröfu um nýlegan bílaflota sem uppfyllir kröfur um útblástur.
  • Lögð er áhersla á að lágmarka notkun plastpoka, flokka úrgang og velja umhverfismerktar vörur í innkaupum.
  • Gæði ræstingar eru tryggð með reglulegri þjálfun og fræðslu starfsmanna ásamt ferlum til að fylgjast með gæðum þjónustunnar. Fyrirtækið þarf að uppfylla öll lög og reglugerðir sem eiga við starfsemina.

Norræna umhverfismerkið Svanurinn

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem byggist á óháðri vottun og viðmiðum sem taka tillit til alls lífsferils vöru og þjónustu. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun samfélagsins svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og við til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta 66 mismunandi vöru- og þjónustuflokka.

 

Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir„Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.

Einnig er hægt að sjá gott yfirlit yfir aðilana hér á Græna Íslandskortinu.

Ljósmynd: Frá afhendingu Svansleyfisins til forsvarsmanna Fjarðarþrifs á dögunum. Kristín Linda forstjóri Umhverfisstofnunar er lengst til vinstir á myndinni. Mynd af FB síðu Svansins.

 

Birt:
9. maí 2012
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Fjarðarþrif ehf. fær Svaninn“, Náttúran.is: 9. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/09/fjardarthrif-ehf-faer-svaninn/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: