Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) boðar til alþjóðlegrar ráðstefnu í tilefni af 20 ára afmæli stofnunarinnar og 100 ára afmælis Háskóla Íslands. Ráðstefnan fer fram dagana 4.–5. nóvember 2011 við Háskóla Íslands og dagskrána má nálgast hér (.pdf).

Ráðstefnan í ár skiptist í 20 málstofur með þátttöku fræðimanna af ólíkum fræðasviðum. Athygli er vakin á sérstakri öndvegismálstofu til minningar um framlag kvenna til stofnunar Háskóla Íslands og í tilefni af aldarafmæli laga um rétt kvenna til náms og embætta. Í málstofunni verður leitað svara við spurningunni: Hverju hefur menntun kvenna skilað? Málstofan er haldin í samstarfi við Kvennasögusafnið og Jafnréttisstofu.

Lykilfyrirlesarar á ráðstefnunni eru:

  • Cynthia Enloe, stjórnmálafræðingur og prófessor við Clark-háskóla í Bandaríkjunum: The Strauss-Kahn Affair: The Cultures and Structures of Masculinity. Enloe er heimsþekkt fyrir femíníska greiningu sína á hervæðingu, stríðum, stjórnmálum og hnattvæðingu efnahagskerfa og hefur stundað rannsóknir í Írak, Afganistan, Bandaríkjunum, Bretlandi, Japan, Filippseyjum, Kanada, Chile og Tyrklandi.
  • Joni Seager, prófessor í hnattrænum fræðum við Bentley-háskóla í Boston: Death by Degrees: Making Feminist Sense of the 2° Climate Change Target. Seager stundar femínískar rannsóknir á sviði landfræði, alþjóða- og umhverfismála. Hún er afkastamikil fræðikona og hefur birt fjölda greina og bóka. Meðal bóka hennar er The Penguin Atlas of Women in the World  sem hefur fengið mjög góða dóma og unnið til verðlauna. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi hjá Sameinuðu þjóðunum og unnið þar að verkefnum er varða umhverfismál og stefnumótun í vatnsmálum.
  • Beverly Skeggs, prófessor í félagsfræði við Goldsmiths, London-háskóla:Rethinking Respectability: the moral economy of person value? Skeggs er höfundur bókanna Formations of Class and Gender: Becoming Respectable,  Class, Self, Culture og Feminism after Bourdieu. Hún hefur fært rök fyrir mikilvægi stéttar í mótun kynjaðra sjálfsmynda og því gildi sem einstaklingum er gefið í samtímamenningu.

Alþjóðleg ráðstefna RIKK er fimmta stóra ráðstefnan um kvenna- og kynjarannsóknir sem fer fram við Háskóla Íslands og verður haldin í framhaldi af alþjóðlegu ráðstefnunni Líkamar í krísu sem fer fram dagana 2.-4. nóvember við Háskóla Íslands.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við umhverfisráðuneytið, Jafnréttisstofu, Kvennasögusafnið, Alþjóðamálastofnun, Stofnun Sæmundar fróða, EDDU – öndvegissetur og Alþjóðlegan jafnréttisskóla við Háskóla Íslands.

Birt:
26. október 2011
Tilvitnun:
Kristín Svava Tómasdóttir „Þræðir og fléttur - menning, samfélag og umhverfi“, Náttúran.is: 26. október 2011 URL: http://nature.is/d/2011/10/26/thraedir-og-flettur-menning-samfelag-og-umhverfi/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: