Landvernd efnir til málþings um sjálfbæra ferðamennsku og náttúruvernd á háhitasvæðum, mánudaginn 21. maí nk. í Nauthóli við Nauthólsvík kl. 13:00-16:15. Allir velkomnir! Sjá dagskrá í viðhengi og hér að neðan.

Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum er tveggja ára verkefni sem Landvernd hleypti af stokkunum í upphafi árs 2012. Verkefnið er hugsað sem fyrsti hluti af langtímaverkefni um verndun jarðhita á Íslandi. Með þessu verkefni vill Landvernd stuðla að vernd þessara einstöku auðlinda okkar þannig að núlifandi og komandi kynslóðir geti notið þeirra.

Dagskrá:

13:00 Setning málþings, Sveinbjörn Björnsson, Landvernd

13:05  Eðli og náttúra háhitasvæða hér og erlendis, Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum og forseti Ferðafélags Íslands

13:40  Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum - kynning á verkefni Landverndar, Birta Bjargardóttir, Landvernd

13:45  Gildi jarðminja á háhitasvæðum, Kristján Jónasson, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:05  Gildi lífríkis á háhitasvæðum, Ásrún Elmarsdóttir, Náttúrufræðistofnun Íslands

14:30  Kaffi

14:50  Gildi háhitasvæða fyrir ferðaþjónustu, Ingibjörg G. Guðjónsdóttir, Íslenskum fjallaleiðsögumönnum

15:10  Öryggismál ferðamanna á háhitasvæðum, Jónas Guðmundsson, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu

15:25  Pallborðsumræður

16:15  Málþingi lýkur

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðsumræðu: Anna G. Sverrisdóttir, Landvernd.

Ljósmynd: Geysissvæðið, ©Árni Tryggvason.

Birt:
21. maí 2012
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson „Sjálfbær ferðamennska og náttúruvernd á háhitasvæðum“, Náttúran.is: 21. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/07/sjalfbaer-ferdamennska-og-natturuvernd-hahitasvaed/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 7. maí 2012
breytt: 21. maí 2012

Skilaboð: