Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir málþingi um sjálfbær sveitarfélög á Hótel Selfossi fimmtudaginn 13. október kl. 13.00-17:00. Málþingið er haldið í samvinnu við umhverfisráðuneytið.

Málþingið ber yfirskriftina: „Sjálfbær sveitarfélög - lífvænlegt umhverfi – félagslegt réttlæti  – ábyrg fjármálastjórn“.

Á málþinginu verða kynnt verkefni sem tengjast sjálfbærni með einum eða öðrum hætti og eru í gangi víðs vegar um landið.

Dagskrá:

13:00 Inngangsorð - Lúðvík E. Gústafsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

13:05 Sjálfbærni í sveitarfélögum á Íslandi - Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðingur

13:20  Kynning á verkefnum tengdum sjálfbærni.

  • Fyrstu jarðvangar (Geoparks) á Íslandi - Freyr Ævarsson, Fljótsdalshéraði
  • Samþætting aðalskipulags og staðardagskrár 21 - Yngvi Loftsson, Landmótun
  • Hagkvæmar lausnir á meðhöndlun úrgangs í dreifbýli - Ralf Trylla, Ísafjarðarbæ
  • Sjálfbærniverkefni á Austurlandi - Guðlaug Gísladóttir, Norðurþingi
  • Atvinnuátaksverkefni í skógrækt - Einar Örn Jónsson, Skógræktarfélagi Íslands

14:10 Velferð til framtíðar - Hugi Ólafsson, umhverfisráðuneytinu

Kaffihlé

Stefna Sambands íslenskra sveitarfélaga og verkefnin framundan - Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs sambandsins

14:45  Kynning á verkefnum tengdum sjálfbærni

  • Reykjavíkurborg og loftslagsmál - Eygerður Margrétardóttir, Reykjavíkurborg
  • Stefnumót við betri framtíð - Margrét Júlía Rafnsdóttir, Kópavogsbæ
  • NordLead verkefnið - Lúðvík E. Gústafsson, sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Umhverfisvottun sveitarfélaga - Theódóra Matthíasdóttir, Stykkishólmsbæ
  • Framkvæmdasjóður ferðamannastaða - Sveinn Rúnar Traustason, Ferðamálastofu

16:00  Virkir þátttakendur á málþinginu – hópvinna og umræður

a) Hvað er mikilvægast fyrir sjálfbært samfélag? Er hægt að forgangsraða?
b) Vinnuhópar kynna niðurstöður sínar
c) Hvernig er hægt að vinna verkefnum sem eru í gangi og nýjum verkefnum brautargengi?

17:00  Lok málþingsins

Skráning á málþingið hér.

Birt:
11. október 2011
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Málþing um sjálfbær sveitarfélög“, Náttúran.is: 11. október 2011 URL: http://nature.is/d/2011/10/11/malthing-um-sjalfbaer-sveitarfelog/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: