AOL félagar á ÍslandiArt of living er „öndunartækni“, sem er streitulosandi og hefur reynst vel sem áfallahjálp. Aðferðin hefur m.a. verið notuð eftir flóðbylgjuna miklu í Asíu, eftir stríðið í Kósóvó og á Haítí eftir jarðskjálftann mikla þar núna í vor. Art of Living, AOL, er öndunartækni og hugmyndafræði, sem Sri Sri Ravi Shankar  er höfundur að. Upprunnið úr fræðum Yoga, Bhagavad Gita,  og öðrum indverskum Vedic fræðum og heimspeki.

AOL Art of Living kynning verður haldin að Heimalandi í Rangárþingi eystra, þann 29. júní, kl: 21:00 - 22:00 og eru allir velkomnir. Aðgangur er ókeypis.

„Hugsanir okkar er á endalausu flakki milli fortíðar og framtíðar. Við höfum áhyggjur af einhverju sem sem koma skal eða erum að velta okkur uppúr einhverju sem er löngu liðið. Þetta framkallar streitu í líkamanum. Ef við erum í núinu og náum að kyrra hugann tekst okkur mun betur að takast á við lífið. Einbeiting eykst og lífsgæði aukast.“

En hvernig förum við að því að kyrra hugan? Fæstir vita að líkaminn býr yfir einstöku „tæki“ til að losna við stress þ.e: „öndunina“. Já flest okkar nýta einungis lítinn hluta af öndunni og anda bara af gömlum vana og gera sér ekki grein fyrir mætti markvissrar öndunar.

Art of living öndunartæknin getur gagnast þér á eftirfarandi hátt:

  • Þú lærir æfingar sem að stuðla að betra jafnvægi á milli líkama, sálar og huga
  • Þú lærir tækni til þess að losna við neikvæðar hugsanir og tilfinningar
  • Getur minnkað stress og kvíða
  • Getur bætt heilsu og eykur orku
  • Getur bætt einbeitingu og  sjálfsöryggi
  • Þú getur öðlast betri sjálfsþekkinu

Sjá nánar um AOL á www.arofliving.is.

Mynd: AOL félagar á Íslandi.

Birt:
28. júní 2010
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Listin að lifa - Yoga, öndunartækni, hugleiðsla“, Náttúran.is: 28. júní 2010 URL: http://nature.is/d/2010/06/28/listin-ad-lifa-yoga-ondunartaekni-hugleidsla/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: