Í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands í Reykjavík, dagana 16.-18. júní.
 
Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar á vistkerfi norðurslóða? Hvernig mun hringrás gróðurhúsalofttegundanna, koldíoxíðs (CO2), metans (CH4) og hláturgass (N2O) breytast í framtíðinni? Hafa vötn, mýrar, skógar og önnur gróðurvistkerfi áhrif á veðurfar? Hverjir eru möguleikar breyttrar landnotkunar ss. skógræktar, landgræðslu og endurheimtar votlendis á að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga? Hversu mikilvæg er myndun loftarða (e: aerosols) í mismunandi gróðurlendum fyrir skþjamyndun og veðurfar heimsins? Hverjar eru nýjustu kenningar og uppgötvanir á þessu sviði?
 
Á ráðstefnunni verður leitast við að svara ofangreindum spurningum og gefið yfirlit yfir stöðu málaflokksins. Ráðstefnan er jafnframt lokafundur tveggja norrænna öndvegissetra á sviði umhverfisrannsókna sem styrkt voru af norrænu rannsóknaráðunum og Norðurlandaráði árin 2003-2008. Ráðstefnan verður haldin á ensku og samanstendur af fyrirlestrum og veggspjöldum. Fyrirlesarar verða nokkrir af helstu sérfræðingum Norðurlanda á sviði loftslagsmála, auk þekktra vísindamanna frá Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Japan og víðar.
 
Ráðstefnan hefst mánudaginn 16. júní kl. 13:00 með setningu Magnúsar Jóhannessonar, ráðuneytisstjóra Umhverfisráðuneytisins, og hún stendur fram á miðvikudag 18.06. Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir og skráning fer fram á staðnum. Ráðstefnugjald fyrir gesti er 7000 kr/dagurinn eða 15.000 kr fyrir alla dagana. Frítt er fyrir háskólanema gegn framvísun skólaskírteina.
 
Sjá dagkrá ráðstefnunnar. 

Landbúnaðarháskóli Íslands og Skógrækt ríkisins standa að ráðstefnunni í samstarfi við norrænu öndvegissetrin. Í skipulagsnefnd ráðstefnunnar sitja m.a. Bjarni Diðrik Sigurðsson (bjarni@lbhi.is), Hlynur Óskarsson (hlynur@lbhi.is) og Brynhildur Bjarnadóttir (brynhildur@skogur.is). Þau geta veitt frekari upplýsingar, sé þess óskað.

Mynd frá Scienpoles.org sýnir mögulegar breytingar á Golftraumnum samfara loftslagsbreytingunum.

Birt:
11. júní 2008
Tilvitnun:
LBHÍ og Skógrækt ríkisins „Opin vísindaráðstefna um loftslagsmál og hringrás gróðurhúsalofttegunda“, Náttúran.is: 11. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/11/opin-visindaraostefna-um-loftslagsmal-og-hringras-/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: