Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 6. september n.k. í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Fjölbreytt dagskrá er á menningarminjadeginum í ár. Þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð.

Klukkan 14:00 mun Magnús A. Sigurðsson minjavörður Fornleifaverndar ríkisins á Vesturlandi vera með vettvangsferð þar sem hann kynnir fornar tóftir bæjarins Öndverðarness, í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli.

Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins fer fram um land allt og má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins.

Birt:
2. september 2009
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Evrópski menningarminjadagurinn“, Náttúran.is: 2. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/02/evropski-menningarminjadagurinn/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: