Náttúran.is vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem styrktu útgáfu Græna Reykjavíkurkortsins sem kom út nú í byrjun mánaðarins. Án þeirra hefði kortið aldrei litið dagsins ljós. Við viljum þakka öllu því góða fólki, í eftirfarandi fyrirtækjum og stofnunum, sem tók ákvörðun um að Grænt Reykjavíkurkort væri mikilvægt tillegg til samfélagsins. Þau eru:

Elding - Hvalaskoðun Reykjavík
Háskóli Íslands - Verkfræði og náttúruvísindasvið
Íslenska gámafélagið ehf.
Kaffitár
Maður lifandi
N1 hf.
Olís - Olíuverslun Íslands hf.
Prentsmiðjan Oddi ehf.
Sorpa bs
Reykjavíkurborg
Yggdrasill

Alþingi Íslendinga, Umhverfisráðuneytið og Iðnaðarráðuneytið höfðu áður styrkt þróunarvinnu Grænkortaverkefnis Náttúrunnar. Einnig Háskóli Íslands - Verkfræði og náttúruvísindasvið og Reykjavíkurborg sem styrktu nú einnig fyrstu prentútgáfu Reykjavíkurkortsins.

Það skal tekið fram að styrktaraðilar njóta þó engra sérréttinda hvað varðar skráningar á kortið enda byggir Green Map skráning eingöngu á þeim viðmiðum sem kerfið setur. Grænt Reykjavíkurkort er ekki selt heldur er því dreift ókeypis í von um að það stuðli að skjótri grænvæðingu Reykjavíkurborgar og landsins alls. Hægt er að panta kortið og fá sent heim gegn greiðslu fyrir pökkun og sendingarkostnað (panta hér).

Þeir sem vilja leggja verkefninu lið fyrir frekari þróun hafi samband í síma 483 1500 eða skrifi okkur á nature@nature.is.

Birt:
16. nóvember 2010
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Styrktaraðilar prentútgáfu Græna Reykjavíkurkortsins 2010“, Náttúran.is: 16. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/10/19/styrktaradilar-prentutgafu-graena-reykjavikurkorts/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. október 2010
breytt: 15. janúar 2012

Skilaboð: