Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2010. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

Tilnefningar sendist á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík, merktar Umhverfisverðlaun eða með tölvupósti á umhverfisstjóra stofnunarinnar, Svein Rúnar Traustason, á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 30. október næstkomandi.

Sjá aðila sem hlotið hafa umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hér á Grænum síðum.

Sjá nánar um hvernig hægt er að tilnefna aðila á vef Ferðamálastofu.

Birt:
6. október 2010
Höfundur:
Ferðamálastofa
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Ferðamálastofa óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna“, Náttúran.is: 6. október 2010 URL: http://nature.is/d/2010/10/06/ferdamalastofa-oskar-eftir-tilnefningum-til-umhver/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: