Dregið hefur jafnt og þétt úr notkun nagladekkja í Reykjavík undanfarin ár. Á liðnum vetri töldust 42% bifreiða á nöglum í marsmánuði en 44% árið áður. Veturinn 2004-2005 voru 58% bifreiða á nöglum í mars. Nagladekk spæna upp malbikið hundrað sinnum hraðar en önnur dekk og valda með því meira svifryki og auknum kostnaði við viðhald gatna.

Svifryk hefur farið 12 sinnum yfir heilsuverndarmörk á þessu ári og má einungis fara 12 yfir á árinu samkvæmt reglugerð. Nagladekk eru helsti orsakavaldur svifryks að vetrarlagi. Tímabilið þar sem ekki er bannað að aka um á nagladekkjum er frá 1. nóvember til 15. apríl.

Nagladekk nýtast í raun illa í Reykjavík. Prófanir á dekkjum sýna að góð alhliða vetrardekk duga betur í flestum aðstæðum að vetri til. Einnig er vetrarþjónusta gatna í Reykjavík góð og þá fáu daga sem færð er slæm er auðvelt að ferðast um borgina með öðrum hætti en einkabíl.

Reykjavíkurborg hvetur ökumenn til að setja góð alhliða vetrardekk undir bílana sína – án nagla.

Birt:
6. október 2009
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Góð vetrardekk betri en nagladekk“, Náttúran.is: 6. október 2009 URL: http://nature.is/d/2009/10/06/goo-vetrardekk-betri-en-nagladekk/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: