Málþing í Gunnarsholti, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 10:00-16:00.

Fjallað verður um möguleika og takmarkanir sem felast í nýtingu lífræns úrgangs til að bæta landkosti.

Þátttaka er ókeypis. Boðið er upp á léttan hádegisverð. Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 24. nóvember, á netfangið jon.ragnar.bjornsson@land.is

Dagskrá málþingsins er hér að neðan og í viðhengi.

10.00-10.10  Setning. 
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.
Ávarp frá umhverfisráðuneyti.

10.10-10.30  Lög um förgun og meðhöndlun  lífræns úrgangs. Gunnlaug Einarsdóttir, Umhverfisstofnun.
Fyrirspurnir og athugasemdir.

10.30-11.20  Framboð, áburðargildi og meðhöndlun lífrænna hráefna.
Seyra og slóg. Birgir Þórðarson, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands.
Búfjáráburður, hey, sláturúrgangur.  Garðar Þorfinnsson,  Landgræðslunni.
Næringargildi lífræns áburðar. Hreinn Óskarsson, Skógrækt ríkisins.
Fyrirspurnir og athugasemdir.

11.20-12.30  Takmarkanir og möguleikar á notkun lífræns áburðar.
Smithætta og mengun.  Auður Lilja Arný órsdóttir,   Matvælastofnun.
Flutningur og dreifing.  Guðmundur Stefánsson, Landgræðslunni.
Lífrænn áburður í nútíma samfélagi. Guðmundur Tryggvi Ólafsson,  Sorpstöð Suðurlands. 
Fyrirspurnir og athugasemdir.

12.30-13.30  Matarhlé.

13.30-14.20  Nýting lífræns áburðar í landbúnaði og landgræðslu.
Guðmundur Stefánsson, Hraungerði.
Björn Hilmarsson, Hafnarfjarðarbæ.
Gústav M. Ásbjörnsson, Landgræðslunni.
Björn Guðbrandur Jónsson, Gróðri fyrir fólk í landnámi Ingólfs.
Fyrirspurnir og athugasemdir.

14.20-15.40  Almennar umræður.

15.40-16.00  Samantekt og málþingsslit.

Fundarstjórar:  Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands.
Elín Fjóla Þórarinsdóttir, Landgræðslunni.

Birt:
16. nóvember 2009
Tilvitnun:
Landgræðsla ríkisins „Lífrænn úrgangur til landbóta - óþefur eða auðlind?“, Náttúran.is: 16. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/16/lifraenn-urgangur-til-landbota-othefur-eoa-auolind/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: