Náttúran birtir nú fjórða sáðalmanak ársins 2012 en Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti tekur saman efni í sáðalmanök Náttúrunnar.

Efnið er unnið úr garðabók Maríu Thun, en hún hefur fengist við rannsóknir á tengslum himintungla og gróðurs í rúmlega 60 ár og gefur út sáðalmanak á hverju ári. Höfuðáhrifin eru frá tunglinu, eftir því hvernig það stendur gagnvart stjörnumerkjum dýrahringsins.

Dagur    Tími

1.    maí  00 – 24 ávextir
2.    maí  00 – 15 ávextir, 16 – 24 rót
3.    maí  00 – 24 rót
4.   maí   00 – 24 rót
5.   maí   00 – 16 rót, 16 – 24 óhagstætt
6.   maí   00 – 16 rót, 17 – 21 blóm, 22 – 24 blað
7.   maí   00 – 24 blað
8.   maí   00 – 23 blað
9.   maí   00 – 24 ávextir
10. maí   00 – 24 ávextir
11. maí   00 – 02 ávextir, 03 – 24 rót
12. maí   00 – 24 rót
13. maí   00 – 05 rót, 06 – 09 blóm, 10 – 24 ávextir
14. maí   00 – 12 ávextir, 13 – 24 blóm
15. maí   00 – 05 blóm, 06 – 24 blað
16. maí   00 – 05 blað, 06 – 21 ávextir, 22 – 24 blað
17. maí   00 – 24 blað
18. maí   00 – 09 blað, 10 – 24 ávextir
19. maí   00 – 24 ávextir
20. maí   00 – 09 ávextir, 10 – 21 rót, 21 – 24 óhagstætt
21. maí   00 – 14 óhagstætt, 14 – 24 rót
22. maí   00 – 24 rót
23. maí   00 – 10 rót, 11 – 14 blóm, 14 – 24 óhagstætt
24. maí   00 – 24 óhagstætt
25. maí   00 – 03 óhagstætt, 03 – 17 blóm, 18 – 24 ávexti
26. maí   00 – 24 blað
27. maí   00 – 09 blað, 10 – 24 ávextir
28. maí   00 – 23 ávextir
29. maí   00 – 23 ávextir
30. maí   00 – 24 rót
31. maí   00 – 24 rót

Til heildar stefnir stórt og smátt,
í starfi á hvað í öðru þátt.
Sjá himinöflin upp og niður stíga
og áfram gullnar skálar síga!
Á blikvængjum þau blessun færa,
frá brautum himins jörðu hræra,
samræma alheim með tóna tæra.

J. W.v Goethe. Þýð. Yngvi Jóhannesson

Á hringferð sinni umhverfis jörðina fylgir máninn nokkurnvegin braut sólarinnar, eins og hún lítur út frá jörðinni, þó ekki alveg og er því ýmist fyrir ofan hana eða neðan, þ.e. hann er annaðhvort hækkandi eða lækkandi miðað við braut sólarinnar. Þessi hreyfing mánans hefur ákrif á safspennuna í öllum gróðri. Þegar máninn er lækkandi, þá leitar safinn meira niður í ræturnar og þegar máninn fer hækkandi meira upp í efri hluta plantnanna.

Þessvegna er hagstætt að gróðursetja plöntur þegar máninn fer lækkandi, því þá er meiri kraftur í rótunum og plönturnar því fljótari að festa rætur á nýjum stað. Einnig er virkni jarðvegslífvera þá meiri.

Af þessari ástæðu er einnig hagstæðara að uppskera rótarávexti á sama tímabili, þeir eru þá kraftmeiri og geymast betur.

Tímabilið frá 1. maí til 7. og frá hádegi þann 22. til loka maí hagstætt til umplöntunar/útplöntunar.

Hvað varðar plöntur þar sem efri hluti þeirra er nýttur, þá er hagstæðast að uppskera þær þegar máninn er rísandi. Þær eru þá þróttmeiri og afurðin geymist betur. Þetta á við um blaðgrænmeti, ávexti, ber og fræ.

Oftast liggur í augum uppi hvað eru rætur, blaðplöntur, ávextir og blóm en hér skulu talin upp nokkur atriði sem geta vafist fyrir okkur.

  • Til rótarplantna teljast líka sellerí, hnúðsellerí, kálrabi eða pastinaka og laukar.
  • Til blaðplantna teljast hnúðfennel, aspargus, rósakál og blómkál.
  • Til blómplantna teljast blómplöntur þó þær vaxi upp af laukum og brokkóli.
  • Til ávaxta teljast baunir, linsubaunir, allar korntegundir, kúrbítur, grasker, agúrkur, tómatar og maiskorn.

Annað skýrir sig sjálft.

Grafík: Sáðalmanak fyrir maí 2012. Gengið er út frá því að tíminn sé ekki lína heldur spírall sem heldur endalaust áfram að mynda hringi. Árið er einn hringur og snið hvers mánaðar því 1/12 úr hring. Tunglstaðan sést á efsta baug fyrir ofan mánaðarsniðið. Línur þekja þá daga og tíma dags þegar gott er að sá til tiltekinnar tegundar jurtar. Rauð lína er fyrir ávöxt, græn fyrir blaðplöntu, brún fyrir rótarplöntu og gul fyrir blómplöntur. Táknin; ávöxtur, blað, rót og blóm eru staðsett í byrjun og við lok tímabils til afmörkunar. Guðrún A. Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

 
Birt:
19. maí 2012
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðfinnur Jakobsson, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Hildur Hákonardóttir „Sáðalmanak fyrir maí 2012“, Náttúran.is: 19. maí 2012 URL: http://nature.is/d/2012/05/01/sadalmanak-fyrir-mai-2012/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 1. maí 2012
breytt: 24. febrúar 2014

Skilaboð: