Í tilkynningu frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra segir:

„Samkvæmt upplýsingum frá Vatnamælingum er hlaup hafið í Skaftá   og gera má ráð fyrir að hlaupið verði í stærra lagi.  Nú vex hratt í ánni við Sveinstind og gera má ráð fyrir vatnavöxtum í byggð seinna í dag eða kvöld.  Fólki er ráðlagt  að vera ekki nálægt upptökum Skaftár vegna  brennisteinsmengunar.  Upptök Skaftár eru úr Skaftárjökli í Vatnajökli austan við Langasjó.   Ef verulega vex í ánni er hætta á að vatn flæði yfir veginn við Hólaskjól rétt við Eldgjá á Nyrðra fjallabaki og ef til vill víðar.   Náið er fylgst með framgangi hlaupsins.“

Sjá myndskeið um hlaupið á visir.is.
Mynd frá Skaftárhlaupi 2007. Visir.is.

Birt:
11. október 2008
Höfundur:
Einar Bergmundur
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Hlaup í Skaftá er að hefjast“, Náttúran.is: 11. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/11/hlaup-i-skafta-er-ao-hefjast/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: