Toyota á Íslandi er áttunda íslenska fyrirtækið til að hljóta umhverfisvottun skv. alþjóðlega umhverfisstjórnunarstaðlinum ISO 14001. Sjá lista yfir þau fyrirtæki sem hlotið hafa ISO 14001 hér á Grænum síðum. Toyota hefur verið einn fremstur bílaframleiðanda í heiminum til að hanna umhverfsivænni bíla og hefur fyrirtækið svo sannarlega verið í framvarðasveit á þeim vettvangi um árabil. ISO 14001 umhverfisstaðallinn er þó ekki sjálfvirkt tengdur umhverfisstefnu mmóðurfyrirtækisins heldur þarf hvert umboð í hverju landi að standast kröfur þar sem settar eru í umhverfisstjórnunarkerfinu ISO 14001.

ISO 14001 umhverfisstjórnunarstaðallinn er til að hjálpa fyrirtækjum til þess að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum sínum, uppfylla gildandi umhverfisreglugerðir og starfsleyfisákvæði.

ISO 14001 leggur áherslu á það hvernig varan er framleidd en ekki vöruna sjálfa. Vottun umhverfisstjórnunarkerfisins er framkvæmd af hlutlausum þriðja aðila.

Birt:
4. júlí 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Toyota fær ISO 14001 vottun“, Náttúran.is: 4. júlí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/07/04/toyota-fr-iso-14001-vottun/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 16. janúar 2008

Skilaboð: