Íslenska umhverfisverndar- og vottunarfyrirtækið Beluga ehf. tilkynnir mun taka þátt í samstarfi með Polish organization Centre for Citizenship Education (CCE) í verkefni sem nefnist „Young Ambassadors of Environmental Treasures of Local Communities“. CCE hlaut styrk í byrjun árs frá The Financial Mechanism of the European Economic Area, the Norwegian Financial Mechanism og pólskum styrktarsjóði sem styrkir verkefni á sviði umhverfisverndar.

Aðrir þátttakendur í verkefninu eru norska ráðgjafafyrirtækið Ramboll, argentínsku félagasamtökin OPE, sem reka vistvæn félög fyrir ungt fólk þar í landi, OPUS, sem er pólsk grein þessara samtaka, FWIE sem styður á bak við grænar tæknilausnir í gegnum tímaritið Green Brigades, eFTe sem eru samtök sem standa að svokölluðum „fair trade“ viðskiptum í Póllandi og Rekopol Recovery Organisation S.A, sem standa að endurvinnslu og umhverfisstjórnum í Pollandi.

Yfirlýst markmið verkefnisins er að virkja umhverfisvitund ungs fólks í Póllandi og verður verkefnið sett á laggirnar í alls 80 sveitafélögum þar í landi.

CCE mun koma inn í skólastarf í Póllandi og hafa náið samstarf við kennara í grunn- og á framhaldsskólastigi við skipulagningu á verkefnum fyrir nemendur og fræðsla á sviði umhverfisverndar. Auk þess verður haft samstarf við fulltrúa í sveitastjórnum í tengslum  við ýmsar uppákomur í viðkomandi sveitafélögum.

Sú reynsla sem Beluga hefur áunnið sér á Suðurlandi síðastliðin ár mun nýtast vel í þessu tilraunaverkefni en aðkoma Beluga verður ýmis ráðgjöf fyrir stjórnanda verkefnisins, Gabrielu Lipska hjá CCE.

Markmið verkefnisins er að:

  • Auka umhverfismeðvitund nemenda í skólakerfinu
  • Minnka orkusóun og auka vitund ungs fólks á umhverfisvernd
  • Kynna fyrir ungu fólki ýmsar umhverfisvænni vörur sem eru á
  • Markaði.     
  • Hvernig á að ferðast umhverfisvænt
  • Stuðla að ýmsum umhverfislausnum


Verkefnið mun hefjast í mars á þessu ári og standa yfir í tvö ár.
Sjá vef Beluga.

Birt:
10. mars 2008
Höfundur:
Beluga
Uppruni:
Beluga ehf
Tilvitnun:
Beluga „Beluga í samstarf við pólsk samtök“, Náttúran.is: 10. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/10/beluga-i-samstarf-vio-polsk-samtok/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: