Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Reglur á Íslandi verða að danskri fyrirmynd samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Rannsóknir sýna að neysla á transfitusýrum eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum og eru í þeim efnum taldar mun skaðlegri en önnur fita. Iðnaðarframleiddar transfitusýrur sem um ræðir myndast þegar olía er hert að hluta.

Danir hafa gengið á undan öðrum þjóðum með því að banna að magn slíkra transfitusýra í matvælum fari yfir 2. gr af hverjum 100. gr fitu. Nokkrar aðrar Evrópuþjóðir hafa nú fetað sig í sömu átt og í Bandaríkjunum og Kanada er skylt að geta um magn transfitusýra við merkingu matvæla.

Talið er að meðalneysla Íslendinga á transfitusýrum hafi farið lækkandi á undanförnum árum en jafnframt eru vísbendingar um að ákveðinn hluti fólks neyti meira af trans-fitusýrum en þau viðmið sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur birt.

Birt:
9. nóvember 2010
Höfundur:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
Fréttablaðið „Setur reglur um transfitusýrur“, Náttúran.is: 9. nóvember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/11/11// [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. nóvember 2010
breytt: 28. nóvember 2010

Skilaboð: