Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar varar eindregið við því að virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hefjist áður en gengið hafi verið frá orkuöflun, línulögnum, losunarheimildum og fleiru. Þetta kemur fram í ályktun fundarins frá því í dag.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni í upphafi fundarins að það væri ekki góð hagfræði við núverandi aðstæður að ráðast í stóriðjuframkvæmdir á suðvesturhorninu sem væru líklegar til að auka á verðbólguþrýstinginn.

Þessi mál komu til umræðu á fundinum í dag og lögðu þau Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, og Mörður Árnason, varaþingmaður og formaður Græna netsins, fram drög að ályktun. Hún var samþykkt með breytingum Ingibjargar Sólrúnar.

Í ályktuninni segir meðal annars að áhersla sé lögð á að meðan beðið sé niðurstaðna rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða verði ekki farið inn á óröskuð svæði. Þá er í henni, eins og áður sagði, varað við því að virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hefjist áður en gengið hafi verið frá orkuöflun, línulögnum og losunarheimildum og fleiru.

Ályktunin er í heild hér.
Birt:
30. mars 2008
Höfundur:
Viðskiptablaðið
Tilvitnun:
Viðskiptablaðið „Samfylkingin varar við því að virkjana- og stóriðjuframkvæmdir hefjist strax“, Náttúran.is: 30. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/30/samfylkingin-varar-vio-thvi-ao-virkjana-og-storioj/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: