Jurgen Bey er án efa einn af áhugaverðustu hönnuðum samtímans. Hann er hollenskur með aðsetur í Rotterdam. Jurgen Bey er í hópi þeirra hönnuða sem fyrst mynduðu Droog Design og komu Hollandi á kortið sem hönnunarlandi. Hann heldur fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu þ. 15. janúar nk. kl. 20:00.

Jurgen kennir við Hönnunarakademíuna í Eindhoven og Royal College of Art í London. Það sem einkennir Jurgen Bey einna helst er hugrekki. Hugrekki til að eltast ekki við viðteknar hugmyndir um hönnun. Hann er í senn óendanlega forvitinn og áhugasamur um mannlega hegðun, venjur og gildismat, og síðast en ekki síst um þær sögur sem hlutir hafa að geyma. Hann notast við gamla hluti í bland við ný efni og aðferðir. Þannig öðlast hlutirnir nýtt gildi og segja nýjar sögur.

Verk Jurgens vekja fólk til umhugsunar um gildi hluta, um fjöldaframleiðslu og yfirþyrmandi neyslu í þjóðfélaginu. Jurgen Bey tók þátt, ásamt samstarfsfólki sínu hjá Studio Makkink&Bey, í verkefninu 8+8 MADE IN HAFNARFJÖRÐUR í september 2008 þar sem framleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði voru í samstarfi við hönnuði við að þróa nýja vöru og skapa framleiðslu fyrirtækjanna sérstöðu. Jurgen Bey er gestakennari við Listaháskóla Íslands

Birt:
12. janúar 2009
Höfundur:
Hönnunarmiðstöð
Tilvitnun:
Hönnunarmiðstöð „Jurgen Bey - endurnýting í hönnun“, Náttúran.is: 12. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/12/jurgen-bey-endurnyting-i-honnun/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 13. janúar 2009

Skilaboð: