Orð dagsins 18. maí 2009

Þeir sem drekka úr flöskum úr pólýkarbónatplasti hafa mun hærri styrk af efninu bisfenól-A (BPA) í þvagi en þeir sem ekki drekka úr slíkum flöskum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn, sem sagt er frá í vísindatímaritinu Environmental Health Perspectives. BPA-styrkur í þvagi þeirra sem þátt tóku í rannsókninni hækkaði um 69% á einni viku. Vikuna á undan forðuðust þátttakendur að drekka úr plastflöskum, en í rannsóknarvikunni notuðu þeir pólýkarbónatflöskur undir nær alla kalda drykki sem þeir innbyrtu. BPA er grunneiningin í pólýkarbónatplasti, sem hefur það fram yfir flest annað plast að hægt er að framleiða úr því glæra, sveigjanlega og nær óbrjótanlega hluti á borð við drykkjarflöskur. Slíkar flöskur eru einkar vinsælar undir íþróttadrykki. Pólýkarbónat er einnig notað í pela fyrir ungbörn o.m.fl.

Í Kaliforníu og Minnesóta eru pelar með BPA bannaðir, en í löndum Evrópusambandsins eru þeir taldir hættulausir. BPA er þó á lista sambandsins yfir hormónatruflandi efni.
Lesið frétt dönsku upplýsingamiðstöðvarinnar um umhverfi og heilsu (IMS) sl. föstudag
og fræðist meira um BPA á heimasíðu sömu stofnunar

Birt:
18. maí 2009
Höfundur:
Stefán Gíslason
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Varúð - Drykkjarflöskur úr plasti“, Náttúran.is: 18. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/18/varuo-drykkjarfloskur-ur-plasti/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 30. júlí 2010

Skilaboð: