Margvísleg námskeið eru á dagskrá á næstunni í Virkjun á Vallarheiði. Virkjun mannauðs á Reykjanesi var opnuð 15. janúar síðastliðinn í byggingu 740 og er ætlað að vera miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit.

Á lista yfir fyrirhuguð námskeið í Virkjun er fjölbreytt flóra hagný tra námskeiða í bland við áhugaverð tómstundanámskeið. Þar má vinna námskeið í stofnun og rekstri fyrirtækja, gerð færnimappa og ferilskrár, gerð viðskiptaáætlana, tréútskurði og listmálun, svo eitthvað sé nefnd.

Virkjun verður opin alla virka daga frá 9-16 og eru allir velkomnir. Hún er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Vinnumálastofnunar, verkalþðsfélaga, fyrirtækja og menntastofnana á svæðinu s.s. Keilis, miðstöð vísinda og fræða, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.

Markmiðið með rekstri Virkjunar er að byggja upp starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. Þá verður Virkjun ekki síður samkomustaður fólks sem vill breyta því áfalli sem atvinnuleysi er í ný tækifæri á atvinnumarkaði með námi, námskeiðum, tómstundum og menningarstarfsemi.

Sjá nánar á bloggsíðu Virkjunar: http://virkjun.blog.is/blog/virkjun/ Mynd af vf.is.
Birt:
11. febrúar 2009
Höfundur:
Víkurfréttir
Tilvitnun:
Víkurfréttir „Virkjun mannsins“, Náttúran.is: 11. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/11/virkjun-mannsins/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: