Umhverfisstofnun vill minna fólk á að velja af kostgæfni andlitsliti á börn fyrir öskudag. Könnun á vegum danskra heilbrigðisyfirvalda hefur leitt í ljós að efni í andlitslitum sem ætluð eru fyrir börn geta innihaldið óæskileg efni sem ýmist er vitað að geti verið hættuleg eða vísbendingar gefa tilefni til að varlega skuli farið. Gera má ráð fyrir að flestar snyrtivörur, þar með taldir andlitslitir, megi nota á öruggan hátt en hafa verður í huga að börn eru viðkvæmari fyrir efnum en fullorðnir.

Nokkur atriði sem hafa má í huga við val á andlitslitum:

  • Ilmefni (parfume) geta mörg hver valdið ofnæmi.
  • Rotvarnarefni geta verið varasöm. Parabenar (isobutþlparaben, bútþlparaben, o.fl.) eru rotvarnarefni sem leyfilegt er að nota í litlu magni en hafa ekki verið rannsökuð að fullu og grunur leikur á að efnin geti truflað hormónastarfsemi líkamans. Rannsóknir benda til truflandi áhrifa á hormónastarfsemi en ekki hefur verið skorið úr um það hve sú hætta er mikil.
  • CE-merking er ákveðin trygging.
  • Innihaldsefni þ.m.t. litarefni skulu talin upp á umbúðum.


Frétt dönsku Umhverfisstofnunarinnar.
Vörurnar úr dönsku könnuninni.
Eldri frétt um andlitsliti af vef Umhverfisstofnunar.

Myndin er af Daníel Tryggva og Hrafnkatli. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
5. febrúar 2008
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Hættuleg efni í andlitslitum“, Náttúran.is: 5. febrúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/05/haettuleg-efni-i-andltslitum/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 7. febrúar 2008

Skilaboð: