Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) - „svínainflúensunnar“ - voru í morgun alls 1.008 í nítján ríkjum í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu).

Einkenni veikinnar eru enn sem komið er væg nema í Mexíkó. Dauðsföll sem rakin eru til veikinnar eru 23, þar af 22 í Mexíkó og eitt í Bandaríkjunum.

Á síðasta sólarhring voru staðfest 30 ný tilvik á Evrópska efnahagssvæðinu, þar af 24 á Spáni.

  • Engin tilfelli inflúensu A (H1N1) hafa verið staðfest hér á landi en rétt er að minna á að hin árlega inflúensa, sem gekk hér í vetur, er enn í gangi á Íslandi og hafa nokkur slík tilfelli verið greind hér á síðustu dögum.
  • Engir sjúklingar með  alvarleg einkenni inflúensu hafa verið lagðir inn á Landspítalann núna um helgina.
  • Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi heimsfaraldurs er óbreytt hér landi og ekki áformað að grípa til róttækari aðgerða en þegar hefur verið gert.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir nú með að talað sé um inflúensu A (H1N1) í stað „svínainflúensu“.

Að gefnu tilefni skal tekið fram að embætti sóttvarnalæknis styðst við upplýsingar frá Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC) um útbreiðslu inflúensunnar. Þær er að finna á heimasíðu stofnunarinnar http://www.ecdc.europa.eu/. Tölum um útbreiðslu veikinnar frá Sóttvarnastofnuninni annars vegar og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hins vegar ber ekki saman í mörgum tilvikum en sóttvarnarlæknir telur upplýsingar hinnar fyrrnefndu áreiðanlegri og vísar til þeirra.

  • Upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi er að finna á landlaeknir.is, almannavarnir.is, influensa.is og heimasíðum Sóttvarnarstofnuanr Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
  • Áréttað skal að birgðir sem íslensk heilbrigðisyfirvöld ráða yfir af lyfjum gegn inflúensu A (H1N1), 100.000 skammtar, eru annars vegar Tamiflu (80.000 skammtar) og Relenza (20.000 skammtar). Þetta er tekið fram hér vegna þess að dæmi eru um að í fjölmiðlum hafi verið fullyrt að allar birgðirnar væru Tamiflu-lyf en það er sem sagt ekki rétt.
Staðfest eru 1.008 sjúkdómstilvik inflúensu A (H1N1)
að morgni 4. maí 2009

Staðfest tilfelli í Evrópu

 

Austurríki

1

Danmörk

1

Frakkland       

2

Þýskaland       

8

Írland             

1

Ítalía               

2

Holland          

1

Spánn             

44

Sviss               

1

Bretland         

18

Alls í Evrópu

79

 

 

Staðfest tilfelli utan Evrópu

 

Kanada            

101

Kólumbía        

1

Kosta Ríka      

1

Hong Kong     

1

Ísrael               

3

Mexíkó            

590

Suður-Kórea  

1

Nýja Sjáland 

5

Bandaríkin      

226

Alls utan Evrópu

929

 

 

Alls staðfest tilfelli í heiminum öllum

1.008

Heimild: Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins
http://www.ecdc.europa.eu/

Birt:
4. maí 2009
Höfundur:
Einar Bergmundur
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Yfir 1.000 staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1)“, Náttúran.is: 4. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/04/yfir-1000-staofest-tilfelli-influensu-h1n1/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: