Líkur eru á að styrkur svifryks fari annan daginn í röð yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík. Svifrykið berst aðalega með sandstormum frá strandlengju Suðurlands. Svifryk hefur farið níu sinnum yfir mörkin á árinu. Styrkur ósons er ekki hár í dag.

Sólarhringsmörk svifryks (PM10) eru 50 míkrógrömm á rúmmetra en hálftímagildið mældist klukkan 12.00 í dag, 14. maí, 234 á Grensásvegi og 248 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri er ráðlagt að taka tillit til þessa. Hægt er fylgjast með styrk svifryks á heimasíðu Reykjavíkurborgar (www.reykjavik.is). Starfað er eftir viðbragðsáætlun Heilbrigðisnefndar Reykjavíkur um loftgæði í borginni.

Svifryk hefur farið níu sinnum yfir á árinu en má má samkvæmt reglugerð nr. 251/2002 fara 12 sinnum yfir heilsuverndarmörk árið 2009.

Styrkur ósons (O3) sem mældist hár í gær mælist ekki hár í dag, 14. maí en sú mengun barst með sterkum vindstraum frá meginlandi Evrópu.

Ekki er búist við svifryksmengnun yfir heilsuverndarmörkum á morgun föstudag því þá lægir vind.
Birt:
14. maí 2009
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Svifryk yfir heilsuverndarmörkum í dag“, Náttúran.is: 14. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/14/svifryk-yfir-heilsuverndarmorkum-i-dag/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: