Nordic Tourism - Inspiration - Innovation - Destination

Iðnaðarráðuneytið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Norræna Nýsköpunarmiðstöðin, í samvinnu við Norrænu ráðherranefndina, efna þann 28. apríl næstkomandi til norrænnar ráðstefnu á Ísafirði sem fengið hefur heitið Nordic Tourism. Ráðstefnustjóri er Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.

Á ráðstefnunni verður áhersla lögð á nýsköpun í ferðaþjónustu, uppbyggingu áfangastaða og viðbrögð ferðaþjónustunnar við efnahagserfiðleikum.

Fjölmargir fyrirlesarar munu koma og miðla af reynslu sinni. Aðalfyrirlesari er Jill Hellman - Chief Innovator for Thayer Lodging Group og mun hún fjalla um nýsköpun á tímum efnahagskreppu. Aðkoma ríkis og sveitarfélaga að þróun áfangastaða og uppbyggingu í ferðaþjónustu mun verða til umræðu í fyrirlestrum Sigrúnar Jakobsdóttur, bæjarstjóra á Akureyri og Claus Rex Christensen frá VisitDenmark.

Sjá nánar á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Nánari upplýsingar og dagskrá

Myndin er af höll Samúels Jónssonar í Selárdal. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
3. apríl 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Norræn nýsköpun í ferðaiðnaði“, Náttúran.is: 3. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/03/nordic-tourism-isafiroi/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: