Nú stendur yfir Norræn matarhátíð Kræsingar og kæti í Norræna húsinu í Reykjavík og vörusýningin heldur áfram í kjallara Norræna hússins en síðasti dagur hennar er á morgun sunnudag. Fjöldi erlendra og íslenskra framleiðenda og þjónustuaðila kynna framleiðslu sína og gefa að smakka af kræsingunum.

Auk sýningarinnar er fjölbreytt dagskrá fyrirlestra. Dagskráin í dag er:

  • 13:00 Kvikmynd. Nýr norrænn matur í Danmörku og á Íslandi. Film: New Nordic food in Denmark and Iceland
  • 14:00 Fáðu þér bita úr Matarkistu Skagafjarðar. Tasting the Skagafjörður foodchest.
    Fyrirlestur og smökkun / Lecture and tasting. Guðrún Brynleifsdóttir, Matarkistan.
  • 15.00 Bjór á Norðurlöndum / Beer in the Nordic countries. Fyrirlestur og smökkun. Lecture and tasting. Mads Holm.
  • 16:00 Keimur úr Þingeyjarsýslu. Matarbúrið. Þingeyjarsýsla – for your taste. Matarbúrið. Fyrirlestur og smökkun / Lecture og tasting. Jóna Matthíasdóttir.
  • 17:00 Heimur vínsins / Introduction to the world of wine. Fyrirlestur og smökkun / Lecture and tasting. Sérfræðingur frá ÁTVR / Wine-expert from ÁTVR.

Sjá dagskrá allra daganna nánar í vefútgáfu bæklings hátíðarinnar.
Sjá vef Ny Nordisk mad.

Myndin er af Ólafi Jónssyni, galdramanni á sviði kokkamennsku í bás Matar úr héraði á sýningunni. Ólafur er kokkur á Hólum. Matur úr héraði er upprunamerking og samvinnuverkefni milli aðila í ferðaþjónustu og matarframleiðslu og veitingareksturs í Skagafirði.

Birt:
23. febrúar 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Ný Norræn matargerðarlist, næstsíðasti dagur“, Náttúran.is: 23. febrúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/23/ny-norraen-matargeroarlist-naestsioasti-dagur/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 25. febrúar 2008

Skilaboð: