Borgarstjórinn og bæjarstjórar á Höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í hjóladegi fjölskyldunnar með því að sameinaðist í Nauthólsvík og hjóla þaðan í Ráðhúsið þar sem Tjarnarspretturinn í götuhjólreiðum var í þann mund að hefjast.
Hjólalestir sveitafélaganna á Höfuðborgarsvæðinu tengdust við Ylströndina áður en stígið var á sveif beint í Ráðhúsið þar sem boðið var upp á heilsusamlegar veitingar.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri þakkaði öllum kærlega fyrir að taka þátt í deginum og setja með því svip á borgina. Hún sagði að gott fordæmi hefði verið sýnt sem gæti orðið öðrum hvatning til að hjóla eða ganga meira á Höfuðborgarsvæðinu.

Hinn árlegi Tjarnarsprettur götuhjólreiðamanna fór einnig fram í dag. Karlar hjóluðu 15 hringi umhverfis Tjörnina og konur 10 hringi. Davíð Þór Sigurðsson sigraði í karlaflokki á 34:15 en Árni Már Jónsson var aðeins sjónarmun á eftir honum. Pétur Þór Ragnarsson var þriðji á 34:26 Ein kona mætti í keppnina að þessu sinni. Bryndís Þorsteinsdóttir sem lauk við 10 hringi á 24 mínútum og 26 sekúntum.
Á sunnudag eru íbúar Reykjavíkur hvattir til að hvíla bílinn og nýta sér göngu- og hjólasvæði borgarinnar ásamt útivistarsvæðum. Á mánudag verður strætódagur en leita má eftir 150 bíómiðum í vögnum þann dag.

Mynd: Tjarnarsprettsþátttakendur. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
19. september 2009
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Hjóladagur og Tjarnarsprettur í Reykjavík“, Náttúran.is: 19. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/19/hjoladagur-og-tjarnarsprettur-i-reykjavik/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: