Landbúnaðarháskóli Íslands stendur fyrir námskeiði sem ætlað öllu áhugafólki um ræktun matjurta í eigin garði.

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig standa skuli að undirbúningi á matjurtaræktun utanhúss. Farið verður yfir mikilvægi þess að jarðvegur sem valinn er til ræktunar sé nægilega góður og eins hvernig megi bæta þann jarðveg sem hefur verið notaður árum saman. Komið verður inn á staðsetningu matjurtagarðsins á lóðum með tilliti til sólar og skjóls. Farið verður yfir hvers konar umhirðu sé almennt þörf til að ná sem bestri uppskeru. Helstu tegundir til ræktunar verða kynntar og verklegar æfingar við stungu og sáningu þeirra (kartöflur, rófur, gulrætur, rauðrófur, radísur, rabarbari). Hvernig standa skuli að uppskerunni og hvernig best er að geyma matjurtirnar fram að notkun. Möguleikar á lífrænni ræktun skoðaðir og hvernig hægt er að nota afskurði úr ræktuninni í safnhaugagerð. Hluti námskeiðsins er verkleg sýnikennsla.

Kennari er Gunný ór K. Guðfinnsson, umhverfisstjóri Ölfusi og stundarkennari við LbhÍ.
Tími: Lau. 28. feb, kl. 9:00-15:00 (7 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Reykjum, Ölfusi. Sjá nánar um verð og skráningu á vef Landbúnaðarháskólans.

Mynd: Gulrót úr lífrænni ræktun í Skaftholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
27. febrúar 2009
Tilvitnun:
Landbúnaðarháskóli Íslands „Ræktun útimatjurta fyrir byrjendur“, Náttúran.is: 27. febrúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/02/27/raektun-utimatjurta-fyrir-byrjendur/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: