SkaftafellSkilafrestur umsókna framlengdur

Verkefnisstjórn rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði boðar til opins kynningarfundar miðvikudaginn 21. apríl kl. 16:00.í Nýja bíói, fundarsal á 4. hæð Iðuhússins, Lækjargötu 2, í Reykjavík.  Á fundinum verða kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Í kjölfar kynninga verða umræður og fyrirspurnum svarað. Jafnframt hefur verið ákveðið að framlengja skilafrest umsagna um niðurstöður faghópa til 3. maí.

Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og  nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hefur starfað óslitið frá haustinu 2007. Markmið rammaáætlunar er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.

Verkefnisstjórn hefur gefið út skýrslu með kynningu á þeim virkjunarkostum/svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum faghópanna sem metið hafa svæðin og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Skýrslan ásamt margskonar ítarefni  liggur einnig frammi á vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is.

Niðurstöður faghópa er ekki lokaniðurstaða 2. áfanga rammaáætlunar. Að loknu umsóknarferlinu mun verkefnisstjórn nýta niðurstöður faghópanna og hafa umsagnir til hliðsjónar  við að setja saman heildarniðurstöður áætlunarinnar og senda þær stjórnvöldum.  Áveðið hefur verið að framlengja skilafrest umsagna til 3. maí. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is.

Nánari upplýsinga gefur starfsmaður verkefnisstjórnar, Tómas Þór Tómasson, gsm 860-8098; netfang: tomast@unak.is.

Ljósmynd: Í Skaftafelli ©Árni Tryggvason.

Birt:
19. apríl 2010
Uppruni:
Rammaáætlun
Tilvitnun:
Tómas Þór Tómasson „Opinn kynningarfundur rammaáætlunar í Reykjavík 21. apríl“, Náttúran.is: 19. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2010/04/19/opinn-kynningarfundur-rammaaaetlunar-i-reykjavik-2/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: