Í tilkynningu frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur segir að öll sýni sem tekin voru í júní við strandlengju Reykjavíkur hafi verið innan viðmiðunarmarka. Hvergi hefur orðið vart við skólpmengun. Mörkin í nánd við fjörur eru 100 saurkólígerlar í 100 millilítrum.

Umhverfis- og samgöngusvið vaktar strandlengju borgarinnar. Heilbrigðisfulltrúar taka sýni mánaðarlega á ellefu stöðum. Sýnatökustaðir eru valdir með tilliti til þess hvar líklegt er að fólk stundi útivist. Sýni sem tekin voru 25. júní síðastliðinn bera vitni um ómengaða strönd í Reykjavík. Viðmiðunarmörk fyrir saurmengun á útivistarsvæðum í nánd við fjörur eru 100 saurkóligerlar í 100 millilítrum samkvæmt reglugerð um fráveitur og skólp.

Vöktun strandlengjunnar 2008 - Niðurstöður gerlamælinga 25. júní

  Saurkólígerlar Enterókokkar
Brautarholt 24 2
Kjalarnes 11 1
Kollafjörður 0 1
Staðahverfi 5 1
Eiðsvík 3 2
Elliðavogur 2 2
Laugarnes 0 0
Ægisíða 0 0
Skerjafjörður 0 0
Nauthólsvík 1 1
Grafarvogur 1 2
Birt:
4. júlí 2008
Höfundur:
Gunnar Hersveinn
Tilvitnun:
Gunnar Hersveinn „Strandlengjan í Reykjavík örugg til útivistar “, Náttúran.is: 4. júlí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/07/04/strandlengjani-reykjavik-orugg-til-utivistar/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: