Landvernd er frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum til að vernda og bæta lífsgæðin í landinu. Hlutverk Landverndar er að standa vörð um íslenska náttúru og vera virkur þátttakandi í stefnumótun, fræðslu og upplýstri ákvarðanatöku í málum er varða landnotkun, auðlindir og umhverfi. Samtökin voru stofnuð 1969.

Helstu verkefni:

  • Dagleg stjórn skrifstofu Landverndar
  • Framkvæmd starfs- og fjárhagsáætlana
  • Talsmaður samtakanna og samskipti við fjölmiðla
  • Umsjón með fjáröflun vegna verkefna
  • Ábyrgðarmaður útgáfu og ritstjóri heimasíðu
  • Skipulagning málþinga og annarra viðburða
  • Samskipti við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila
  • Skipulag og samræming aðgerða er miða að því að ná settum markmiðum

Hæfniskröfur:

  • Þekking á orku- og umhverfismálum
  • Þekking á stjórnsýslu og lagaumhverfi
  • Skipulagshæfileikar og stjórnunarreynsla
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, ensku og Norðurlandamáli
  • Hæfni til að setja saman vandaðar álitsgerðir í samráði við stjórn
  • Frumkvæði, drifkraftur, samskiptahæfni
  • Frumleg og heildræn hugsun
  • Brennandi áhugi og vilji til að ná árangri

Um er að ræða hálft starf frá áramótum til að byrja með. Frekari upplýsingar veitir Björgólfur Thorsteinsson, sími 864-5866. Umsóknir óskast sendar á netfangið bth@landvernd.is.

Sjá nánar um Landvernd á vef samtakanna www.landvernd.is.

Birt:
30. nóvember 2009
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Landvernd auglýsir eftir framkvæmdastjóra“, Náttúran.is: 30. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/30/landvernd-auglysir-eftir-framkvaemdastjora/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: