Málþing um stöðu markaðs- og kynningarmála í ferðaþjónustu 2009 verður haldið í Laugardalshöll, sal 1, föstudaginn 8. maí kl. 14:30. Málþingið er haldið af Ferðamálasamtökum Íslands í tengslum við sýninguna Ferðalög og frístundir, sem verður opnuð klukkan 16 sama dag.

Dagskrá:

  • 14:30 Setning – Pétur Rafnsson, formaður Ferðamálasamtaka Íslands
  • 14:35 Erindi – Ársæll Harðarson, verkefnastjóri erlendra umboðsskrifstofa Icelandair
  • 14:55 Erindi – Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
  • 15:15 Fyrirspurnir og umræður
  • 15:45 Málþingi slitið

Málþingsstjóri: Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.

Myndin er tekin við Jökulsárlón 02.05.2009. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
6. maí 2009
Höfundur:
Ferðamálastofa
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Málþing um ferðaþjónustuna“, Náttúran.is: 6. maí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/05/06/malthing-um-feroathjonustuna/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: