}

Sýningaropnun - Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi

Staðsetning
Kaupvangsstræti
Hefst
Laugardagur 16. ágúst 2014 15:00
Lýkur
Laugardagur 16. ágúst 2014 17:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Urta islandica - Skapandi greinarLaugardaginn 16. ágúst, kl. 15 opnar í Ketilhúsinu sýning Urta Islandica ehf., Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi, sem samanstendur af myndlist, gjörningum, vöruhönnun, matvælaiðnaði og verslun. Tilgangurinn er að skoða samlegðaráhrif þessara ólíku sviða og þá orku sem losnar úr læðingi þegar skapandi greinar á borð við myndlist komast í tæri við fjármagn sem tengist viðskiptalífinu og öfugt.

Spjótum verður beint að ríkjandi stigveldishugsun innan listgreina og því viðhorfi að listirnar séu í eðli sínu hreinar, frjálsar og óháðar markaðnum. Á sama tíma verður þeirri hugmynd andmælt að listirnar séu byrði á samfélaginu, listamenn afætur og að leggja eigi niður opinbera styrki á þessu sviði. Viðburðurinn er hugsaður sem samræðugrundvöllur og vettvangur fyrir nýja hugmyndafræði þar sem siðfræði, samfélagsábyrgð og sjálfbærni gegna lykilhlutverki.

Sýningin stendur til 21. september og er opin alla daga nema mánudaga kl. 10-17 en kl. 12-17 frá og með 2. september. Sýningarstjóri er Þóra Þórisdóttir myndlistar- og athafnakona.

Birt:
14. ágúst 2014
Tilvitnun:
Listasafnið á Akureyri „Skapandi greinar í átt að heilbrigðara efnahagskerfi“, Náttúran.is: 14. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/14/urta-islandica-skapandi-greinar/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: