}

Sumardagurinn fyrsti

Staðsetning
Óstaðsett
Hefst
Fimmtudagur 24. apríl 2014 00:00
Lýkur
Föstudagur 25. apríl 2014 00:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Það verður mikið um að vera í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, en þann dag verður opið hús í skólanum frá kl. 10 til 17:30. Hátíðardagskrá hefst nokkru síðar eða kl. 14.

Í aðalbyggingu skólans fer fram Íslandsmeistarakeppni í blómaskreytingum og eru allir velkomnir til að fylgjast með keppendum að störfum. Sumarið er komið í garðskálanum og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafninu. Verkefni nemenda í skrúðgarðyrkju verða til sýnis í verknámshúsi. Á útisvæði verður í gangi námskeið í torf– og grjóthleðslu.

Kaffiveitingar og markaðstorg með garðyrkjuafurðir. Ýmis fyrirtæki verða með afurðir til sýnis og sölu. Kynning á námi við skólann og alls konar námskeiðum sem eru í boði.

Nýlega kom í hús önnur uppskera af kaffi úr bananahúsi skólans. Hægt verður að kaupa sér bolla af kaffi og smakka hvernig til hefur tekist. Hver bolli er sérmerktur og fylgir með í kaupunum. Einstakt tækifæri til að smakka kaffi ræktað á Íslandi. Í mötuneyti skólans verður hægt að kaupa og kaffi og heimabakað meðlæti.

Kl. 14:00-15:30 verður hátíðardagskrá þar sem afhent verða Garðyrkjuverðlaun LbhÍ, Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar og nýr Íslandsmeistari í blómaskreytingum lítur dagsins ljós.

Hátíðardagskrá í Garðyrkjuskólanum:

14:00 – 14:05 Setning - Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ
14:05 – 14:30 Garðyrkjuverðlaun 2014 - Mennta– og menningarmálaráðherra, Illugi Gunnarsson
14:30 – 14:35 Tónlistaratriði
14:40 – 14:55 Umhverfisverðlaun Hveragerðis - Umhverfisráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson
15:00—15:05 Tónlistaratriði
15:05 – 15:30 Íslandsmeistarakeppni í blómaskreytingum, verðlaunaafhending - Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari Reykjum

Ljósmynd: Stúlka í bananahúsinu að Reykjum en það er opið gestum á hátíðahöldunum á Sumardaginn fyrsta. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
23. apríl 2014
Tilvitnun:
Landbúnaðarháskóli Íslands - LBHÍ „Opið hús í Garðyrkjuskólanum að Reykjum á Sumardaginn fyrsta“, Náttúran.is: 23. apríl 2014 URL: http://nature.is/d/2014/04/23/opid-hus-i-gardyrkjuskolanum-ad-reykjum-sumardagin/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: