}

Tilnefningar til Kuðungsins

Staðsetning
Óstaðsett
Hefst
Fimmtudagur 25. febrúar 2016 00:00
Lýkur
Miðvikudagur 23. mars 2016 00:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Merki Kuðungsins. Merkið hér að ofan er Kuðungur sem Náttúran.is fékk en Náttúran.is fékk umhverfisviðurkenninguna fyrir árið 2011.

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2015.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega. Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Þau fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna hingað til eru:

2014 – Landspítalinn
2013 – Kaffitár
2012 – Íslenskir fjallaleiðsögumenn
2011 – Náttúran.is
2010 – Farfuglaheimilin í Reykjavík
2009 – Oddi
2008 – Íslenska Gámafélagið
2007 – Sólarræsting
2006 – Bechtel
2005 – Línuhönnun
2004 – Orkuveita Reykjavíkur
2003 - Hópbílar
2002 – Árvakur
2000 – Íslenska álfélagið
1999 – Borgarplast
1998 – Fiskverksmiðja Haraldar Böðvarssonar á Akranesi
1997 – Olíufélagið
1996 – Fiskverkun KEA í Hrísey
1995 – Prentsmiðja Morgunblaðsins
1994 – Umbúðamiðstöðin, Gámaþjónustan og Kjötverksmiðjan Goði

Sjá Kuðungshafa hér á Grænum síðum.

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins fyrir árið 2014 sitja Ásborg Arnþórsdóttir formaður, skipuð af umhverfis- og auðlindaráðherra, Kristinn Þorsteinsson fyrir félagasamtök á sviði umhverfismála, Heimir Janusarson fyrir Alþýðusamband Íslands og Sigurður Ágústsson fyrir Samtök atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 23. mars n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík.

Birt:
3. mars 2016
Tilvitnun:
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið „Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2015“, Náttúran.is: 3. mars 2016 URL: http://nature.is/d/2016/03/03/oskad-eftir-tilnefningum-til-kudungsins-2015/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: