}

Jólamarkaðurinn Elliðavatni opinn

Staðsetning
Elliðavatn
Hefst
Sunnudagur 21. desember 2014 11:00
Lýkur
Sunnudagur 21. desember 2014 16:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Jólamarkaðurinn vinsæli við Elliðavatn opnaði laugardaginn 29. nóvember og verður opinn allar helgar fram að jólum frá klukkan 11-16. Mikið úrval af íslensku handverki og hönnun.

Dagskráin hefst við hátíðlega athöfn þar sem Skólakór Norðlingaskóla ætlar að gleðja markaðsfólk og gesti með söng sínum kl.11:30 á hlaðinu og jólaljósin á trénu verða tendruð, en tréð í ár er skreytt af Gerði Jónsdóttur.

Á Hlaðinu verða til sölu nýhöggvin íslensk jólatré og þar að auki mikið úrval af tröpputrjánum vinsælu og eldiviður. Í Gamla salnum, Hlöðunni og í litlu Jólahúsunum á torginu verður fjölbreyttur hópur handverksfólks sem kynnir vörur sínar og selur. Kaffistofan verður niðri í Elliðavatnsbænum þar sem fjölskyldan getur fengið sér hressingu í anda jólanna, átt notalega stund, og hlustað á rithöfunda lesa og tónlistarfólk flytja falleg lög.

Rjóðrið er trjálundur rétt við Elliðavatnsbæinn þar sem hægt er að setjast á bekki kringum logandi varðeld. Barnastundin verður þar klukkan 14 og þá kemur barnabókahöfundur og les upp fyrir börnin. Jólasveinar koma í heimsókn á markaðinn, og kíkja líka á börnin í rjóðrinu eftir upplesturinn. Þeir syngja og tralla frá 13.30-15.30.

Birt:
10. desember 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jólamarkaðurinn Elliðavatni“, Náttúran.is: 10. desember 2014 URL: http://nature.is/d/2014/12/10/jolamarkadurinn-ellidavatni/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: