}

Edengarðar Íslands - fyrirlestur

Staðsetning
Grand Hótel - Sigtún 38
Hefst
Föstudagur 28. mars 2014 13:00
Lýkur
Föstudagur 28. mars 2014 14:45
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Góður rómur var gerður að fyrirlestri Pálma Einarsson iðnhönnuðar, sem hann hélt á Lífrænum degi í Ráðhúsi Reykjavíkur 2013. Hann kynnti þar framtíðarsýn sem gengur undir heitinu Edengarðar Íslands. Hugmyndir hans hafa þróast í að verða eftirtektarvert verkefni sem hefur nú ratað í fjölmiðla.

Hugmyndir hans um uppbyggingu samfélags og sjálfbæra framleiðslu lífsnauðsynja fellur vel að hugmyndafræði vistræktar.

Markmið Edengarða Íslands er að koma á fót matvæla- og iðnaðarframleiðslu í sátt og samlyndi við náttúruna, stofna samfélagsbanka til að fjármagna það, notast við beint lýðræði, hlúa að öldruðum og öryrkjum, fjármagna og þróa nýja orkugjafa og mennta alla í sjálfbærni.

Verkefnið felur í sér að nota ódýra orku okkar til að framleiða mat og þróa sjálfbæran iðnað úr iðnaðarhampi. 

Í þættinum Sjónmál á Rás 1 í dag útskýrði Pálmi m.a. notkunina á iðnaðarhamp. Viðtalið má nálgast með því að smella hér: Hampur er það heillin!

Föstudaginn 28. mars kl. 13:00 og 15:00 á mun Pálmi halda fyrirlestur á Grand Hóteli í tilefni HönnunarMars og kynna hugmyndina og verkefni Edengarða Íslands.

Sjá Edengarða Íslands hér á Grænum síðum.

Sjá einnig grein af bloggsíðu Pálma sem birtist hér á vefnum þ. 3. apríl 2013

Birt:
19. mars 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Hulda Pálsdóttir „Edengarðar Íslands“, Náttúran.is: 19. mars 2014 URL: http://nature.is/d/2014/03/19/edengardar-islands/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 25. mars 2014

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: