}

Opnunarhátíð Íslenska bæjarins

Staðsetning
Austur-Meðalholt
Hefst
Laugardagur 30. ágúst 2014 14:00
Lýkur
Laugardagur 30. ágúst 2014 17:00
til baka sjá mánuð

Tengt efni

Verið velkomin að vera við opnun fyrstu sýningarinnar, Íslenski bærinn - Fegurð og útsjónarsemi í húsakynnum Íslenska bæjarins að Austur Meðalholtum, Flóahreppi. Þessi sýning markar upphaf formlegrar starfsemi stofnunar sem verið hefur í uppbyggingu mörg undanfarin ár.

Menningarsetrið Íslenski bærinn er húsaþorp, sýningarstaður, samkomustaður og leikvöllur sem hverfist um íslenska torfbæinn og græna byggingalist. Þar munu gestir upplifa einstakan staðaranda, jafnframt því að skoða sýningar sem útskýra samhengi, þróun og tilbrigði íslenskra torfbæja með það að leiðarljósi að túlka aldagamlan og einstakan arf inn í samtímann með samþættingu, fræðimennsku, listrænni nálgun og varðveislu verkmenningar.

Opið hús verður milli kl. 14:00 og 17:00 laugardaginn 30. ágúst 2014. Boðið verður upp á léttar veitingar. www.islenskibaerinn.is.

Sjá staðsetningu Íslenska bæjarins hér á Grænum síðum.

Birt:
26. ágúst 2014
Höfundur:
Íslenski bærinn
Tilvitnun:
Íslenski bærinn „Íslenski bærinn opnar“, Náttúran.is: 26. ágúst 2014 URL: http://nature.is/d/2014/08/26/islenski-baerinn-opnar/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Nýtt efni:

Veður frá windyty.com

Skilaboð: