Við Jökulsárlón. Ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.Landsvirkjun býður til opins fundar um hnattrænar loftslagsbreytingar og hvernig fyrirtæki geta unnið gegn áhrifum þeirra.

Fundurinn verður haldinn í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 22. maí kl. 8:30-10:45.

Dagskrá:

  • Áherslur stjórnvalda í loftslagsmálum - Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra.
  • Hvernig vinnur Landsvirkjun gegn loftslagsbreytingum? - Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
  • Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Ísland - Halldór Björnsson, veður- og haffræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
  • Ábyrgð, samstaða og samstarf um lausn vandans - Halldór Þorgeirsson, forstöðumaður stefnumörkunar hjá skrifstofu Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.
  • Pallborðsumræður - Þátttakendur eru Halldór Björnsson, Halldór Þorgeirsson, Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfis- og auðlindaráðuneyti.

Fundarstjóri er Magnús Halldórsson, blaðamaður á Kjarnanum.

Allir velkomnir!

Fundurinn er haldinn í tilefni 50 ára afmælis Landsvirkjunar.

 


Birt:
18. maí 2015
Höfundur:
Landsvirkjun
Tilvitnun:
Landsvirkjun „Framtíðaráhrif loftslagsbreytinga - Tími til aðgerða“, Náttúran.is: 18. maí 2015 URL: http://nature.is/d/2015/05/18/framtidarahrif-loftslagsbreytinga-timi-til-adgerda/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: