Húsið, smellt á eldhúsið á inngangsmyndNáttúran.is kynnir iOS og Android útgáfu af nýju appi Húsið um allt á heimilinu og nágrenni þess, fyrir alla fjölskylduna.

Ná í Húsið fyrir iOS.
Ná í Húsið fyrir Android

Appið er ókeypis eins og allt sem Náttúran.is þróar til að skapa sjálfbært samfélag. 

Í Húsinu eru þrír flokkar, Húsið og umhverfið, Merkingar og Leikir.

Húsið og umhverfið virkar þannig að þegar þú smellir á einstaka rými innan og utan dyra og síðan á einstaka hluti birtast upplýsingar um hvernig atriði eins og umhverfis- og heilsuáhrif, endurnýting, sparnaður og hagsýn og vistvæn innkaup geta tengst þeim.

Merkingar
Hér finnur þú safn af alls kyns merkjum sem hafa með umhverfi, sjálfbærni, endurvinnslu og hættur að gera. Aðeins með því að skilja þýðingu þeirra erum við fær um að velja jákvæðari kosti. 

Leikir
Hér eru innileikir, útileikir og hugmyndir að náttúruleikjum, föndur og góð ráð fyrir fyrir þig og umhverfið.

Húsið og umhverfið er einnig að finna í vefútgáfu á Náttúran.is undir natturan.is/heimilid/husid.

Þróun appsins „Húsið“ var styrkt af Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Náttúruverndarsjóði Pálma Jónssonar.

Birt:
22. september 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Húsið - app fyrir iOS og Android um allt á heimilinu“, Náttúran.is: 22. september 2014 URL: http://nature.is/d/2014/06/09/husid-app-fyrir-ipad-og-iphone-og-android-um-allt-/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. júní 2014
breytt: 4. febrúar 2016

Skilaboð: