Articles
After financial meltdown, now it's smeltdown
The men woh made Iceland go cap in han to the IMF ar now bent on ruining its landscape
After touring for 18 months I was excited to return home 8 weeks ago to good, solid Iceland and enjoy a little bit of stability. I had done a concert there earlier this year to raise awareness about local environmental issues - especially alternatives to aluminium smelters - and 10 per cent of the nation came to it; but I still felt it wasn’t enough.
So when I got home I decided to contact people all over the island who had attempted to start new companies and bring in new ways of working, but had not succeeded. For a long time Iceland’s main income had been fishing, but when that become uneconomic, people started looking for other ways to earn a living. The conservatives in power thought that harnessing Iceland’s natural energy and selling it to huge companies such as Alcoa and Rio Tinto would solve the problem.
Now we have three aluminum smelters, some of the biggest in Europe; and in the space of the next three years they want to build two more. A lot of Icelanders are against this. They would rather continue to develop smaller companies that they own themselves and keep the money they earn. Many battles have been fought in Iceland on these issues.
In one of these battles the Minister for the Environment forced Alcoa to include the impacts of energy exploiting in their Environmental Impact Assessment. The smelter would need energy from a handful of new geothermal power plants and possibly also some dams. This would damage pristine wilderness, hot springs and lava fields. To take this much energy from the geothermal fields is not even sustainable.
this article continues, read more...
Björk Guðmundsdóttir
29. October 2008 11:06
Origin: Náttúra.info / The Times
Hingað og ekki lengra!
Eftirfarandi ávarp flutt Guðmundur M. H. Beck á ráðhústorginu á Akureyri þ. 25. október sl.
Ég finn mig knúinn til að ávarpa ykkur hér í dag. Við erum hér saman komin á alvarlegum tímamótum í sögu ungrar þjóðar. Á aðeins 17 árum höfum við lifað nýja Sturlungaöld þar sem misvitrir valdagráðugir menn hafa misbeitt valdi sínu og sóað auðlindum þjóðarinnar svo horfir við örbirgð komandi kynslóða ef ekki verður spyrnt við fótum.
Gamalt máltæki segir að oft ratist kjöftugum satt á munn og svo hefi ég mátt því miður reyna síðan ríkisstjórn Íslands og 44 alþingismenn samkvæmt fyrirmælum frá Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni gáfu út lög um hryðjuverkin á Austurlandi, Kárahnjúkavirkjun og álfabrikku Alcoa. Meira en 200 milljörðum af erlendu fé eða um 2 milljónum á hvert heimili var veitt inn í íslenzkt efnahagslíf og helmingurinn af því með ríkisábyrgð. Þetta reyndist hinum sprenglærðu fjárglæframönnum í höfuðborginni nægur eldsmatur til að kynda undir falsbréfasölunni og gefa út ávísanir á auðlindir Íslands út þessa öld. Síðan fengu þeir í hendur þjóðbankana og sjóði atvinnuveganna til að fullkomna áramótabrennu frjálshyggjukapítalistmans.
Ég sagði strax að þetta væru hryðjuverk gegn íslenzku samfélagi þar sem öllu er menn hafa verðið að reyna að byggja upp frá upphafi sjálfstæðisbaráttu var kastað í eldinn og Kárhnjúkahryðjuverkin yrðu myllusteinn um hálsinn á komandi kynslóðum. Það var einnig sárt að verða þess áskynja að ekkert nema sulturinn virtist geta kennt þjóðinni að velta af sér þessu oki og komast til raunveruleikans á ný .
Þeir sem vöruðu við afleiðingum hryðjuverkanna, græðgisvæðingunni, sóun auðlinda og viðskiptahalla voru kallaðir öllum illum nöfnum s.s. óvinir framfara, sérvitringar, talibanar, letingjar og sakaðir um að ætla að færa þjóðina aftur í torfkofana þar sem hún drægi fram lífið á fjallagrösum.
this article continues, read more...
Guðmundur M. H. Beck
27. October 2008 15:44
Origin: Náttúran.is
Úr einu ruglinu í annað
Á þessum viðsjárverðu tímum nota hagsmunaaðilar tækifærið til að ota að okkur „lausnum" og bjargráðum. Núna felst hún í því að „aflétta öllum hömlum" og skuldsetja opinber orkufyrirtæki sem nemur 300 til 400 milljörðum fyrir tvö til þrjú ný álver.
Þetta vilja menn gera þegar heildarskuldir OR og LV eru þegar orðnar 550 milljarðar - að mestu leyti vegna Alcoa og Norðuráls. Þetta er ástæðan fyrir því að bankarnir boðuðu alltaf stóriðjustefnu - meiri skuldir - meira stuð. Það stendur upp á álverð að endurgreiða þessi lán en álverð hríðfellur og stigi offramleiðslu er þegar náð.
Orkuverð til almennings hefur verið hækkað. Þjóðin trúir því að töfraorðið ÚTFLUTNINGSTEKJUR séu gjaldeyrir sem endar í vasa þjóðarinnar. Fréttir um útflutningstekjur og gjaldeyristekjur hafa ítrekað verið beinlínis rangar og skaðlegar.
Á súluriti í Morgunblaðinu 11. okt. virðist áliðnaður mikilvægari en fiskiðnaður og mun stærri en ferðamennska. En framsetningin er nákvæmlega eins og hagsmunaaðilar vilja koma þeim í fjölmiðla. Þegar Alcoa Fjarðarál segist flytja út fyrir 70 milljarða á ári þá halda flestir Íslendingar að þetta sé peningur sem kemur til Íslands. Blöðin birta tölurnar gagnrýnislaust en hvar eru peningarnir?
this article continues, read more...
Andri Snær Magnason
22. October 2008 10:29
Origin: Andri Snær Magnason
Aðgöngumiði á erlenda markaði
Jónas R. Viðarsson útskrifaðist í vor úr meistaranámi í umhverfisog auðlindafræði við Háskóla Íslands. Jónas er í hópi fyrstu nemanna sem útskrifast úr náminu, en hann fjallaði í lokaverkefni sínu um umhverfismerki í sjávarútvegi og naut stuðnings Matís á meðan á undirbúningi þess stóð, en í dag vinnur Jónas þar sem fastur starfsmaður.
„Ég hafði gífurlegan áhuga á að fjalla um sjávarútveg og viðskipti, eftir að hafa verið sjálfur í slorinu í tíu ár á sjó,“ segir Jónas, en hann hafði áður lokið BS-prófi í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri. „Þessi athugun á umhverfismerkingum í sjávarútvegi kallar á viðskiptasjónarhorn en ég er ekki síður að horfa á umhverfisvernd og ímynd greinarinnar.“
Hart tekið á trollveiðum
Jónas útskýrir að þau merki sem mest eru notuð í sjávarútvegi, líkt og í öðrum framleiðslugeirum, byggja á staðli sem einn aðili skilgreinir, en annar aðili vottar að viðkomandi uppfylli kröfur staðalsins. „Þetta er eina leiðin sem býður upp á nægilegan trúverðugleika,“ segir Jónas. Að sögn Jónasar er MSC (Marine Stewartship Council) þekktasta umhverfismerkið í sjávarútvegi. „Merki MSC vottar að fiskurinn komi frá stofnum sem nýttir eru á sjálfbæran hátt. Þar er leitast við að horfa heildrænt á fiskveiðar, bæði ástand stofnsins og aðferðirnar sem notaðar eru við veiðar. Tekið er hart á trollveiðum og botn-togveiðum og það þarf að vanda mjög til verka til að fá vottun á slíkar veiðar,“ segir Jónas.
Bretar lengst komnir
„Umhverfismerkingar eru að koma upp núna í sjávarútvegi eftir lengri sögu í landbúnaði, þar sem lífræn vottun hefur verið lengi við lþði. Þetta hefur gerst hratt á alþjóðavísu á síðustu þremur árum,“ segir Jónas. „Bretar eru komnir lengst og það eru ýmsar blikur á lofti í Bandaríkjunum. WalMart- verslunarkeðjan hefur til dæmis lýst því yfir að þar verði aðeins seldar sjávarafurðir sem vottaðar eru sjálfbærar,“ segir Jónas.
Jónas segir að LÍÚ og íslenskir útgerðarmenn hafi tekið ákvörðun um að MSC-vottun henti ekki hér á landi. „Ætlunin er að koma með sér-íslenskt merki í haust. Þetta merki á að votta að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið sjái til þess að íslenskur fiskur komi úr sjálfbært nýttum stofnum.“
this article continues, read more...
Viðar Þorsteinsson
19. July 2008 22:25
Origin: Viðskiptablaðið
Álftin, ormurinn og fljótið
Eftir Lagarfljóti heitir Fljótsdalur og Fljótsdalshérað eftir dalnum. Fljótið er lífæð Héraðsins og í því býr sál þess í líki Ormsins. Frá upphafi byggðar hefur það verið örlagavaldur. Halldór Laxness yrkir um ,,fljótsins dreymnu ró". (Helgi Hallgrímsson: LAGARFLJÓT) Í júlí sl.var gönguhópur Augnabliks á ferð niður með Jökulsá í Fljótsdal. Áin geymir fegurstu fossaröð Íslands, nú eign ALCOA. Hún er aurminnsta jökuláin öfugt við stöllu sína Jökulsá á Brú sem er aurugust. Því varðveittist þessi einstæða fossaröð.
Gengið var niður með ánni og áð við hinn magnaða foss Faxa. Sumir gengu niður að fossinum, aðrir tóku upp nesti. Ég ráfaði eitthvað um, sá örfáar kindur framundan og þótti ein hafa æði skrþtið vaxtar- og göngulag, ekki kindarlegt. Þarna kjagaði álft með blessuðum skjátunum. Hugsaði ég ekki meir útí það en settist hjá fólkinu.
Sem við sitjum þarna þá flýgur álftin yfir, segir "gvak" og svo rakleitt í fossinn. Þögn sló á hópinn og leitt að sjá blessaða skepnuna farast í fossinum. Veltu menn vöngum en komust ekki að niðurstöðu. Kona stóð við fossinn og sýndist henni álftin reyna að bremsa sig af áður en hún hvarf í iðuna. Þegar við héldum af stað á ný sá ég hvar álftin duggaði í ánni hinumegin við bakkann og kom í ljós að hún var lifandi og spræk. Hvar sem þessi saga var sögð þótti mönnum undrum sæta.
Mánuði seinna er ég enn á ferð þarna og er gengið upp með ánni, frá Glúmsstaðaseli. Þegar við komum að Axaránni sjáum við álftina á klettasyllu í brattri hlíðinni fast við fossinn, einsog að hún lægi á hreiðri sem var auðvitað ekki raunin. Fylgdist hún stóísk með okkur. Var þetta undarlegur staður fyrir álft að halda sig á. Sagði ég Helga Hallgrímssyni alla álftarsöguna þegar ég kom til byggða. Hann spyr hvort ég sé skyggn. Ég neita og bendi á að allir hafi séð álftina. Þá segir Helgi að sagt sé að Lagarfljótsormurinn birtist gjarnan í álftarlíki á undan stórtíðindum. Finn ég strax að skýring Helga muni rétt.
this article continues, read more...
Gréta Ósk Sigurðardóttir
18. July 2008 11:37
Origin: Gréta Ósk Sigurðardóttir

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
tuesday 21. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Rót
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013
13:15 - 16:15
Málþing um Búrfellshraun
See article: Búrfellshraun - Málþing til minningar um Guðmund Kjartansson jarðfræðing
17:30
Undirbúningsfundur fyrir gönguna gegn Monsanto
See article: Göngum gegn Monsanto

Recent comments
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:
Vill nýtt mat vegna Bjarnarflagsvirkjunar http://www.ruv.is/frett/vill-nytt-mat-vegna-bjarnarflagsvirkjunar
Ruv.is 16. 04. 2013 14:09:
Sæll Daði. Skrifaðu sorphirda@reykjavik.is til að fá svar við þessu.
Guðrún Tryggvadóttir 21. 03. 2013 08:51:
Er hægt að fá stóra bláa tunnu fyrir fjölbýlishús eins og ruslagámarnir sem eru með ...
Daði 19. 03. 2013 17:40:
Heimildarmyndin Hvellur verður sýnd í síðast sinn í kvöld þ. 14. mars í Bíó Paradís ...
Guðrún Tryggvadóttir 14. 03. 2013 11:36:
+ More comments


Náttúran.is á Facebook.




