Articles
Blómamynstur Sigurðar Guðmundssonar málara
Eftir heimkomu sína frá Kaupmannahöfn, um 1858, lagði Sigurður Guðmundson (1833-1874) metnað sinn í að „bæta smekk“ landans, enda mikill þjóðernissinni, og vann í því sambandi að nýjum þjóðbúningi sem prýddur væri með blómamynstrum sem „ekki væru skrumskæling erlendra blóma, heldur byggðist á hinni íslensku flóru, þeirri sem algengust er“. Eftir heimkomu sína frá Kaupmannahöfn, um 1858, lagði Sigurður Guðmundson (1833-1874) metnað sinn í að „bæta smekk“ landans, enda mikill þjóðernissinni, og vann í því sambandi að nýjum þjóðbúningi sem prýddur væri með blómamynstrum sem „ekki væru skrumskæling erlendra blóma, heldur byggðist á hinni íslensku flóru, þeirri sem algengust er“.Þannig vildi Sigurður komast nær þjóðarsálinni, sál fátækrar og nægjusamrar þjóðar.
Sigurður teiknaði sjálfur og hannaði (til bróderingar) fyrir útsaum t.d. mynstrin á skautbúninginn (1864), sem er til sýnis í Þjóðminjasafni Íslands. Takmark Sigurðar var að gefa út sjónabók sem íslenskar konur gætu eignast og bróderað eftir, gullsmiðurinn gæti á sama hátt notast við sem og söðlasmiðurinn og útskurðarmeistarinn.
Á Þjóðminjasafninu eru nokkrar af skissum og teikningum Sigurðar til sýnis en þar að auki er fjöldi þeirra varðveittur í sérstöku safni hans í geymslum safnsins. Blöðum af blómum eins og eyrarrós [Epilobium latifolium], ljónslöpp [Alchemilla alpina], hófsóley [Caltha palustris], brennisóley [Ranunculus acris] og maríustakk [Alchemilla vulgaris], spyrnti hann stundum saman á einn stilk og gerði fjölda annarra tilrauna með mynsturmöguleika íslensku flórunnar.
Sigurður lést fyrir aldur fram árið 1874, aðeins 41 árs að aldri.
Heimild: Arndís S. Árnadóttir, „Formative Design Developments in Iceland - The heritage of G.F. Hetsch“ Scandinavian journal of Design History, 13 .(2003).
Myndin er af nokkrum teikningum Sigurðar og kver um faldbúning á sýningu Þjóðminjasafns Íslands. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Sjá vef Þjóðminjasafnsins.
- Knowledge
Related articles:
Knowledge: Native culture [20]
Green Pages:
Native culture [1]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Events calendar
| sun | mán | þri | mið | fim | fös | lau | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 28 | 29 | 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | may |
| 05 | 06 | 07 | 08 | 09 | 10 | 11 | may |
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | may |
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | may |
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 01 | jun |
| 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | 07 | 08 | jun |
| 09 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | jun |
| 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | jun |
| 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | jun |
| 30 | 01 | 02 | 03 | 04 | 05 | 06 | jul |
friday 24. may
00:00 - 23:59
Sáðalmanak: Óhagstætt
See article: Sáðalmanak fyrir maí 2013

Recent comments
Göngum gegn Monsanto á laugardaginn kl. 17:00 http://www.facebook.com/events/371999209586441/?notif_t=plan_user_invited
Guðrún Tryggvadóttir 23. 05. 2013 21:16:
Sæl aftur. Í lífrænni ræktun er talað um að „rækta moldina“ þ.e. að hlúa það ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:25:
Sæl, það er auðvelta að sá til allra jurta. Aðstæður og tími þarf bara að ...
Guðrún Tryggvadóttir 21. 05. 2013 20:21:
Þarf brokkoli einhverja sérstaka næringu þegar það er komið út í beð og þá hvað ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:59:
Er auðvelt að fá grænkál upp af fræjum eða er best að kaupa plönturnar tilbúnar? ...
Hildur María 21. 05. 2013 18:53:
Sæll Jóhannes. Umhverfisverndarsinnar erum við öll sem látum okkur umhverfið varða í verki. Ætli nokkur ...
Guðrún Tryggvadóttir 6. 05. 2013 15:13:
Í Grímsey eru keyrðar disilvélar til raforkuframleiðslu. Orka sem slíkar vélar skila frá sér er ...
Jóhannes Gíslason 5. 05. 2013 18:38:
Breytt hefur verið um fundarstað vegna mikils áhuga á fyrirlestrinum og verður hann nú haldinn ...
Guðrún Tryggvadóttir 4. 05. 2013 22:09:
Fulltrúar framboða til Alþingiskosninga mætast í sjónvarpssal og ræða umhveris- og auðlindamál núna nú kl. ...
Guðrún Tryggvadóttir 16. 04. 2013 19:33:


Náttúran.is á Facebook.




