Ónýtar frystikistur tilheyra „Stórum raftækjum“ og skal skilað til endurvinnslustöðva. Nýtanlega má gefa eða selja. Gömul kælitæki innihalda kælimiðilinn freon en það er efni sem veldur eyðingu ósonlagsins. Að auki innihalda kælitæki olíu sem flokkast sem spilliefni. Freon og olía eru tæmd úr skápunum og efnin meðhöndluð með viðeigandi hætti. Skáparnir eru teknir í sundur og flokkaðir til endurvinnslu. Helstu endurvinnsluflokkar eru járn, ál, kopar og plast.


Skilaboð: