Tekið er við hlutum sem eru með óskert notagildi og tilheyra heimilishaldi s.s. húsgögnum, rafmagnstækjum, innanstokksmunum, leikföngum, bókum, plötum og geisladiskum í nytjagáma Góða hirðisins á endurvinnslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Ekki er tekið við hlutum beint í Góða hirðinum, Fellsmúla 28, nema í sérstökum tilfellum og þá að höfðu samráði fyrst við verslunarstjóra. Markmið Góða hirðisins, nytjamarkaðs Sorpu og líknarfélaga, er að endurnýta húsmuni og láta gott af sér leiða, því ágóðinn af sölunni rennur til góðgerðarmála.


Skilaboð: