Úrvinnslugjald er á hjólbörðum en það er notað til að greiða fyrir meðhöndlun hjólbarðanna og endurnýtingu eftir að þeir hafa þjónað upphaflegum tilgangi sínum. Tekið er við hjólbörðum frá heimilum á endurvinnslustöðvum og hjá Hringrás hf. Hjólbarðar eru kurlaðir og endurnýttir. Ekki má setja plastumbúðir reiðhjóladekk eða slöngur í gáminn. Kurlaðir hjólbarðar af höfuðborgarsvæðinu eru t.d. nýttir sem drenlag á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi.


Skilaboð: