Góð hjól sem engin not eru lengur fyrir má gefa eða selja. Á vefnum hjoladot.is er hægt að skrá, selja, og kaupa hjólavörur sínar. Tekið er við hjólum og öðrum hlutum sem eru með óskert notagildi og tilheyra heimilishaldi s.s. húsgögnum, rafmagnstækjum, innanstokksmunum, leikföngum, bókum, plötum og geisladiskum í nytjagáma Góða hirðisins á endurvinnslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Ef hjól eru ónýt skal setja þau í gám merktan „Málmum“ á gámasvæðum.


Skilaboð: