Vottað lífrænt: Tún, haglendi, sauðfé og villtar plöntur

Tegund bús: Sauðfjárbú
Opnunartími: September – júní eftir pöntunum. Einnig aðra tíma eftir samkomulagi.
Við tökum á móti: Hópum, skólafólki og einstaklingum á öllum aldri. Gott vald á ensku og norðurlandamálum.
Leiðsögn: Tekið er á móti gestum og hægt að panta leiðsögn um búið og nágrenni þess. Einnig er hægt að panta fjöruferð.
Aðstaða: Góð aðstaða fyrir alla aldurshópa. Kaffisopi, salerni og hægt að fá sér sæti.
Annað: Hráefnisvinnsla fyrir leirkerasmiði. Kræklingur og söl. Gæta þarf að sjávarföllum.


Ytri-Fagridalur
371 Búðardalur

4341568

Á Græna kortinu:

Vottað lífrænt

Undirstaða lífræns landbúnaðar er frjósemi jarðvegs, skiptiræktun, lífrænn áburður og velferð búfjár með nægri útivist, rými og lífrænu fóðri. Afurðir má selja með tilvísun til lífrænna aðferða ef óháð vottunarstofa  staðfestir að framleiðslan uppfylli staðla.

Matur úr héraði

Matur sem er ræktaður og unninn í nágrenni. Ekki endilega vottuð lífræn framleiðsla nema slíkt sé tekið sérstaklega fram.

Opinn landbúnaður

Opinn landbúnaður gefur almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins.

Nýsköpun í heimabyggð

Nýsköpun þar sem náttúruafurðir og vistvænar/sjálfbærar framleiðsluaðferðir eru í hávegum hafðar.

Vottuð náttúruafurð

Afurðir byggðar á sjálfbærri nýtingu auðlinda og/eða afurðir sem teljast leyfileg aðföng í lífræna framleiðslu. Náttúruafurð er meðhöndluð frá og með söfnun til síðustu pökkunar eða merkingar eins og um lífræna afurð væri að ræða, en er auðkennd sem vottuð náttúruafurð.

Vottanir og viðurkenningar:

Vottað lífrænt - Tún

Á Íslandi annast Vottunarstofan Tún eftirlit með lífrænni framleiðslu. Í lífrænni ræktun felst að varan hefur verið ræktuð með lífrænum aðferðum, án eiturefna, tilbúins áburðar, hormóna eða erfðabreyttra lífvera. Vottað er í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins um lífræna landbúnaðarframleiðslu og reglur Túns um lífræna snyrtivöruframleiðslu og matreiðslu. Samkvæmt þeim er óheimilt að markaðssetja landbúnaðarvörur sem lífrænar nema þær hafi verið framleiddar í samræmi við ákvæði þessara staðla. Vottunin staðfestir að lífrænum aðferðum hafi verið beitt en metur ekki umhverfisáhrif vörunnar eða umbúða hennar.

Opinn landbúnaður

Velkomin í sveitina!
Með Opnum landbúnaði gefst almenningi tækifæri á að heimsækja bóndabæi og kynna sér þau störf sem unnin eru í sveitum landsins. Merki Opins landbúnaðar er ekki vottun sem slík heldur merki sem auðkennir öll býlin sem eru í samstarfi við Bændasamtök Íslands undir nafni Opins landbúnaðar. Þau eru þversnið af íslenskum landbúnaði í dag. Allir bæirnir hafa vottorð frá dýralæknum um heilbrigði.
Áður en heimsókn er ákveðin er gott að hafa í huga mismunandi aðstæður á bæjunum, t.d. salernisaðstöðu, möguleika á að tylla sér og snæða nesti og annað þess háttar.
Bændur taka gjald fyrir heimsóknir, mismikið eftir eðli og umfangi þjónustunnar. Í langflestum tilfellum er eingöngu hægt að taka við reiðufé og eru gestir vinsamlegast beðnir að hafa það í huga.

Beint frá býli

Beint frá býli er samvinnuverkefni um sölu afurða beint frá býli bóndans á Íslandi. Markmið verkefnisins er að þróa vörumerki og veita bændum ráðgjöf og stuðning varðandi heimavinnslu og sölu. Einnig að miðla upplýsingum um verkefnið til framleiðenda og neytenda í gegnum heimasíðu verkefnisins. Að verkefninu stóðu; Háskólinn á Hólum, Lifandi landbúnaður, Ferðaþjónusta bænda, Landbúnaðarháskóli Íslands, Bændasamtök Íslands og Impra nýsköpunarmiðstöð.

Félagið „Beint frá býli - félag heimavinnsluaðila“ var síðan stofnað í byrjun árs 2008.

Vottuð náttúruafurð - Tún

Vottunarstofan Tún hefur þróað staðla og vottunarkerfi fyrir afurðir sem ekki teljast lífrænar, en eru af náttúrulegum uppruna. Þetta eru afurðir byggðar á sjálfbærri nýtingu auðlinda og/eða afurðir sem teljast leyfileg aðföng í lífræna framleiðslu. Náttúruafurð er meðhöndluð frá og með söfnun til síðustu pökkunar eða merkingar eins og um lífræna afurð væri að ræða, en er auðkennd sem vottuð náttúruafurð.

Frá fyrstu hendi

„Frá fyrstu hendi” og hugtakið „Sveitamatur” eru gæðamerki á matvælum íslenskra sveita, þar sem megin þættir framleiðslunnar byggja á íslensu hráefni og íslenskri framleiðslu. Með íslensku hráefni er átt við hráefni frá landbúnaði, fiskveiðum og nýtingu afurða villtrar náttúru. Með framleiðslu er átt við framleiðslustað, hráefni, starfskrafta, reynslu, þekkingu og sögu- og menningarlegar hefðir.

Einungis félagsmenn í samtökunum Beint frá býli mega nota gæðamerkið „Frá fyrstu hendi” að undangenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum fyrir notkun gæðamerkisins.

Skilaboð: